Alvarleg bilanir í spenni í Búrfellsvirkjun og viðhald hjá öðrum orkuframleiðendum veldur því að Landsnet skerðir orku um óákveðinn tíma til ákveðinna fyrirtækja á Suðurlandi og Vestfjörðum. Skerðingin gæti varað í nokkra daga.
Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets, segir að ekki verði mörg fyrirtæki fyrir skerðingu.
„Það afl sem er til reiðu í kerfinu er minna en ella, þá gerist það að það eru samningar um skerðingarmöguleika hjá mörgum notendum og þær skerðingar eru þá bara virkjaðar.“
Halldór segir að bilunin ætti ekki að hafa víðtæk áhrif.
Gæti tekið nokkra daga
Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir að verið sé að gera við spenninn í Búrfellsvirkjun og hann verði kominn aftur í gagnið á næstu dögum.
Halldór býst við því sömuleiðis að allt verði komið aftur í eðlilegt horf hjá dreifingu Landsnets á næstunni.
„Þegar bilanir eru að þá er alltaf talsverð óvissa, þetta gæti tekið frá nokkrum klukkutímum og upp í nokkra daga en ekki meira en það.“
Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega kom fram að aðeins fyrirtæki á Suðurlandi yrðu fyrir áhrifum en rétt er að fyrirtæki á bæði Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum verða fyrir áhrifum orkuskerðingarinnar.