Götumiðillinn TMZ greindi frá tíðindunum af hinum 83 ára Mann.
Samkvæmt heimildum fjölmiðilsins þá var leikstjórinn, sem hefur áratugareynslu af skotvopnum og var staddur á skotsvæði í Los Angeles í Kaliforníu, að reyna að setja skammbyssu í hulstur þegar hann skaut sig óvart í fótinn síðdegis á laugardag.
Hann var síðan fluttur með sjúkrabíl á spítala í nágrenninu en þar kom í ljós að áverkarnir voru smávægilegir og að byssukúlan hafði ekki farið djúpt. Bæði lögreglan og slökkviliðið í Los Angeles voru kölluð á vettvang.
Michael Mann er einn öflugasti spennumyndaleikstjóri Hollywood og hefur gert sígildar kvikmyndir á borð við The Last of the Mohicans (1992), Heat (1995), Collateral (2004) og Miami Vice (2006).
Mann er enn virkur á níræðisaldri og gerði síðast ævisögulegu myndina Ferrari (2023) með Adam Driver í aðalhlutverki. Hann vinnur nú að kvikmyndinni Heat 2 sem gerist á undan fyrri myndinni, verður með Leonardo DiCaprio, Stephen Graham og Christian Bale í aðalhlutverkum og hefjast tökur á henni í byrjun næsta árs.