Maðurinn hóf skothríð af toppi Tunglpýramídans, einum af Teotihuacán-pýramídunum norðan við Mexíkóborg um klukkan hálf tólf að staðartíma í gær. Pýramídarnir eru einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins og eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Sjö ferðamenn urðu fyrir byssukúlum en AP-fréttastofan segir yfirvöld ekki hafa skýrt hvernig hinir sex særðust. Margir ferðamenn féllu við eða köstuðu sér niður þegar skothríðin hófst.Sex Bandaríkjamenn, þrír Kólumbíumenn, tveir Brasilíumenn og Rússi voru fluttir á sjúkrahús. Sá yngsti þeirra var sex ára gamall en sá elsti 61 árs.Árásarmaðurinn er sagður hafa verið einn að verki. Hann var 27 ára gamall heimamaður. Byssa, hnífur og skotfæri fundust á líki hans.Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segir að skotárásin verði rannnsökuð og að hún hefði verið í sambandi við kanadíska sendiráðið í landinu. Bandaríski sendiherrann í Mexíkó bauð fram aðstoð við rannsóknina.
Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída - Vísir