Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á annan tug manna í umfangsmiklum aðgerðum í gær. Sex voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Mennirnir sex eru allir íslenskir.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti funduðu í New York í gær í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna. Þar bað Selenskí Trump um vetrarpakka af hernaðaraðstoð og sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnakerfi til að verjast skotflaugaárásum Rússa.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri útilokar ekki frekari vaxtahækkanir ef nýir kjarasamningar fela í sér meiri launahækkanir. Hann segir hagkerfið kólna og atvinnuleysi aukast. Miklar launahækkanir ofan í háa vexti gætu komið í veg fyrir vaxtalækkun og orðið upptaktur að harðri lendingu. Þetta segir hann sama dag og atvinnuleysi mælist 6,8 prósent.
Þetta og margt fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar, sem heyra má í spilaranum hér að neðan: