Reikningar sem sjúkraþjálfari sendi Sjúkratryggingum báru þess skýr merki að hann hefði ætlað að blekkja starfsmenn stofnunarinnar til að fá greiðslur sem hann átti ekki rétt á. Þetta er niðurstaða dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem dæmdi sjúkraþjálfarann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Maðurinn var ákærður fyrir að senda inn 577 tilhæfulausa reikninga.
Sjúkraþjálfarinn byrjaði að veita fólki meðferð áður en hann fékk leyfi hjá Reykjavíkurborg til að vera með sjúkraþjálfun í húsnæðinu þar sem hann starfaði og áður en hann fékk samning við Sjúkratryggingar. Maðurinn sagðist hafa sent inn reikninga vegna meðferða sem hann hefði veitt fólki áður en samningurinn tók gildi.
Þetta sagðist hann hafa talið að væri í lagi og ekki komist að því fyrr en eftir á að væri stærra mál en hann taldi. Þá hefði hann óskað eftir að 577 reikningar yrðu ekki greiddir.
Dómari hafnaði rökum sjúkraþjálfarans um að hann hefði gert þetta í góðri trú. Rannsókn á reikningum hefði leitt í ljós að sumir þeirra voru vissulega vegna meðferða sem sjúkraþjálfarinn veitti áður en hann fékk starfsleyfi. Rannsóknin hefði þó líka leitt í ljós að hann hefði sent inn reikninga vegna meðferða sem hefðu ekki farið fram. Einnig hefði hann tilgreint hærri gjaldaliði á reikningum en meðferðin gaf tilefni til.
Sjúkraþjálfarinn sagði að hann hefði ekki ætlað að beita blekkingum í auðgunarskyni. Þessar skýringar sagði dómarinn að væru ótrúverðugar.
Dómarinn tiltók að maðurinn hefði ekki beðið um greiðslu vegna allra reikninganna í einu þegar samningur hans við Sjúkratryggingar tók gildi. Þess í stað hefði hann dreift þeim yfir langt tímabil, frá mars til september.
Framganga mannsins bar að mati dómara ótvíræð merki þess að hann hefði ætlað að blekkja starfsmenn Sjúkratrygginga þrátt fyrir að vera meðvitaður um að hann ætti ekki rétt á greiðslum vegna meðferða sem fóru fram áður en samningurinn tók gildi.