Sjónarvottur í skotvopnamáli segir alla fimm handteknu hafa verið af erlendum uppruna

Sjónarvottur í skotvopnamáli segir alla fimm handteknu hafa verið af erlendum uppruna

Sjónarvottur í skotvopnamáli segir alla fimm handteknu hafa verið af erlendum uppruna

UPPFÆRT 3. ágúst: Vísir fullyrðir að hlutirnir sem fundust í bifreiðunum tveimur hafi reynst vera leikfangabyssur en ekki raunveruleg skotvopn. Fréttin hefur verið uppfærð til samræmis við þessar nýju upplýsingar.

Fimm menn voru handteknir í umfangsmikilli aðgerð lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra á Akureyri síðdegis á sunnudag eftir að tilkynnt var um mann sem miðaði því sem talið var vera skotvopn að öðrum manni. Hlutir sem litið var á sem skotvopn fundust í tveimur bifreiðum sem lögregla stöðvaði. Síðar kom í ljós, samkvæmt Vísi, að um leikfangabyssur var að ræða.

Samkvæmt upplýsingum sem lögregla veitti fjölmiðlum barst tilkynning um mann vopnaðan skotvopni sem hefði miðað því að öðrum manni. Lögregla hafði í kjölfarið uppi á tveimur bifreiðum og stöðvaði þær við gatnamót Þingvallastrætis og Þórunnarstrætis, skammt frá Sundlaug Akureyrar.

Ætluð skotvopn fundust í báðum bifreiðunum og voru fimm menn handteknir. Engin slys urðu í aðgerðinni og sagði lögregla ekki hafa stafað hættu að gestum fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu.

Upplýsingar um þjóðerni, ríkisfang eða dvalarstöðu mannanna hafa ekki verið gefnar út af lögreglu.

„Þetta var bara eins og bíómynd“

Egill Trausti varð vitni að aðgerðinni og fylgdist með henni frá því lögreglubílarnir komu á vettvang. Í samtali við Nútímann segist hann hafa verið fótgangandi á leið úr sundi þegar hann sá lögreglubíla aka hratt um Brekkuna.

„Það var greinilegt að þeir voru með þá alveg á lás. Bílarnir voru fyrir aftan hvorn annan,“ segir Egill.

Skömmu síðar hafi fjöldi lögreglumanna og sérsveitarmanna streymt á vettvang.

„Þegar sérsveitin byrjar koma þarna fjórir eða fimm lögreglubílar. Ég hef alveg séð sérsveitina áður en þetta var bara eins og bíómynd. Það voru árásarrifflar og allt. Það var miðað riffli inn í bílinn og svo voru þeir látnir koma út.“

Egill tók ljósmyndir af aðgerðinni. Á einni þeirra sést maður liggja á götunni á meðan lögreglumenn handjárna hann. Vopnaður sérsveitarmaður stendur þar skammt frá.

Egill sagðist ekki sjálfur hafa séð ætluð skotvopn sem lögregla fann í bifreiðunum. Lögregla staðfesti hinsvegar að vopn hefðu fundist í báðum bílum.

Þrír sjúkrabílar biðu skammt frá

Egill segir umfang viðbúnaðarins hafa sýnt hversu alvarlega lögregla mat aðstæður.

„Maður sá alvarleikann í málinu þegar þrír sjúkrabílar biðu þarna. Þeir voru greinilega til taks ef það skyldi leiða til átaka,“ segir hann.

Hann lýsir því að sérsveitarmenn hafi beint langvopnum að mönnunum og að þeir handteknu hafi verið fjötraðir bæði á höndum og fótum.

Lögregla upplýsti ekki hvers konar skotvopn fundust í bifreiðunum og ekki lá fyrir hver mannanna væri grunaður um að hafa miðað vopni að öðrum.

Segir alla hafa verið frá Mið-Austurlöndum

Egill birti síðar færslu á X þar sem hann sagðist hafa séð aðgerðina í beinni og fullyrti að enginn hinna handteknu hefði verið Íslendingur.

Í samtali við Nútímann ítrekar hann að allir mennirnir sem hann sá tekna úr bifreiðunum hafi að hans mati verið af erlendum uppruna.

„Það sást langar leiðir,“ segir Egill og kveðst telja að mennirnir hafi verið frá Mið-Austurlöndum.

Rétt er að taka skýrt fram að þetta er mat Egils byggt á því sem hann sá á vettvangi. Lögregla hefur ekki staðfest uppruna, þjóðerni, ríkisfang eða dvalarstöðu mannanna. Slíkt verður heldur ekki staðfest út frá útliti þeirra eða ljósmyndum af handtökunni.

Egill hélt því einnig fram í færslu sinni að miklar líkur væru á að mennirnir væru á opinberri framfærslu. Engar upplýsingar hafa komið fram sem staðfesta þá fullyrðingu.

„Orðinn einhver nýr raunveruleiki“

Egill segir atvikið hafa setið í sér eftir að aðgerðinni lauk. Í fyrstu hafi hann ekki velt því sérstaklega fyrir sér sem hann hafði séð, en alvarleiki málsins hafi síðan runnið upp fyrir honum.

„Eftir á fer ég að hugsa að þetta sé orðinn einhver nýr raunveruleiki hérna á Íslandi,“ segir hann.

Honum þyki sérstaklega sláandi að þetta hafi gerst á Akureyri á meðan fjölskylduhátíðin Ein með öllu stendur yfir og fjölmargir gestir eru í bænum.

„Við erum komin þangað að maður er svo ógeðslega stutt frá því að einhver taki í gikkinn,“ segir Egill.

Sigmundur Davíð: „Annars missum við Ísland“

Málið hefur þegar vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, deildi fréttum af aðgerðinni og sagði:

„Það er ekki hægt að una við þetta ástand. Við þurfum að gera okkur grein fyrir raunveruleikanum sem blasir við strax og bregðast við í samræmi við það. Annars missum við Ísland.“
Sigmundur tilgreindi ekki í færslunni til hvaða upplýsinga um hina handteknu hann vísaði eða hvaða aðgerðir hann teldi nauðsynlegar.

Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, tók í sama streng og sagði að vísa ætti mönnunum úr landi ef upplýsingar um þá og meint brot þeirra reyndust réttar:

„Ef þessum mönnum verður ekki hent úr landi, og öllum sem gerast uppvísir að sambærilegu athæfi, þá er það okkur sjálfum að kenna að hlutirnir verði nákvæmlega eins og annars staðar í Evrópu þar sem stjórnmálamenn ljúga því að fólk sjái ekki það sem það er að sjá.“

Ekki liggur þó fyrir hvort mennirnir séu erlendir ríkisborgarar, hvort einhver þeirra hafi íslenskan ríkisborgararétt eða hvort lagalegar forsendur séu fyrir brottvísun.

Önnur stór aðgerð kvöldið áður

Aðgerðin í dag kemur í kjölfar mikils erils hjá lögreglunni á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Kvöldið áður voru níu einstaklingar handteknir í annarri aðgerð þar sem fíkniefni komu við sögu. Einn maður, sem reyndist með hníf á sér, var vistaður í fangageymslu en átta var sleppt á vettvangi.

Egill hélt því fram í samtali við Nútímann að þeir sem komu við sögu í þeirri aðgerð hefðu verið múslimar. Lögregla hefur ekki staðfest trú eða uppruna þeirra einstaklinga. Þá hefur lögregla sagt ólíklegt að tengsl séu á milli aðgerðanna tveggja.

Rannsókn málsins á frumstigi

Mennirnir fimm voru fluttir í fangageymslu og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Enn hefur ekki verið upplýst hvort farið verður fram á gæsluvarðhald, hvers eðlis skotvopnin voru eða hvað bjó að baki tilkynningunni um að vopni hefði verið miðað að manni.

Nútíminn hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá lögreglu um ríkisfang og dvalarstöðu hinna handteknu, eftir því sem lög heimila, auk upplýsinga um vopnin og hugsanleg tengsl mannanna.

Uppfært – Reyndust vera leikfangabyssur

Vísir greinir frá því að meint skotvopn sem fundust í bifreiðunum tveimur hafi við nánari skoðun reynst vera leikfangabyssur.

Þær upplýsingar breyta verulega þeirri mynd sem upphaflega var dregin upp af málinu, en lögregla hafði áður greint fjölmiðlum frá því að skotvopn hefðu fundist í báðum bifreiðunum.

Aðgerðir lögreglu miðast þó við þær upplýsingar sem liggja fyrir á hverjum tíma. Tilkynningin sem barst lögreglu laut að því að maður hefði miðað því sem talið var vera skotvopn að öðrum manni. Sérsveitarmenn gátu því ekki gengið út frá öðru en að raunveruleg vopn kynnu að vera á vettvangi.

#alla #fimm #segir #sjónarvottur #skotvopnamáli

Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/sjonarvottur-i-skotvopnamali-segir-alla-fimm-handteknu-hafa-verid-af-erlendum-uppruna/

📰 Aðrar fréttir

Hatrammar fjölskylduerjur - Vildi fella niður erfðarétt stjúpsonar sem keypti 275,5 m.kr. eignir á 500 þúsund krónur
📅 17.09.2026 👁️ 1
Hatrammar fjölskylduerjur - Vildi fella niður erfðarétt stjúpsonar sem keypti 275,5 m.kr. eignir á 500 þúsund krónur
Karlmaður hefur í annað sinn verið sýknaður af kröfu stjúpmóður sinnar um missi erfðaréttar eftir föður sinn og um ógildingu á kaupsamningi þar sem fa...
„Við höldum í fjallarómantíkina“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
„Við höldum í fjallarómantíkina“ - Vísir
„Já, þetta eru ansi miklar framkvæmdir,“ segir Stefán Jökull Jakobsson, yfirskálavörður Ferðafélags Íslands, en hann er yfir verkinu. Stefán Jökull se...
Rússar kjósa sér 450 skoðana­bræður - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
Rússar kjósa sér 450 skoðana­bræður - Vísir
Þetta eru fyrstu kosningarnar sem haldnar eru í Rússlandi frá því innrásin í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Ráðamenn í Rússlandi vilja, samkvæmt AP fré...
Ættu að endurskoða viðskiptalíkanið frekar en að gaslýsa almenning
📅 17.09.2026 👁️ 1
Ættu að endurskoða viðskiptalíkanið frekar en að gaslýsa almenning
Stjórn Eflingar lýsti samstöðu með Wolt-sendlum í dag eftir að um 60 sendlar lögðu niður störf í gær til að mótmæla kjaraskerðingu. Þeir sögðu fyrirtæ...
Höfnun aðildarviðræðna ekki höfnun Evrópusamstarfs
📅 17.09.2026 👁️ 1
Höfnun aðildarviðræðna ekki höfnun Evrópusamstarfs
Tom Berendsen, utanríkisráðherra Hollands, segir að þó að Íslendingar hafi hafnað aðildarviðræðum við Evrópusambandið hafi þeir ekki hafnað Evrópusams...
Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
📅 17.09.2026 👁️ 1
Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið Aug­lýs­ing­ar á meng­andi vör­um og þjón­ustu verða bann­að­ar í bresku borg­inni Bristol á aug­lýs­ing...
Archbishop withdraws award from Muslim cleric who praised Bin Laden
📅 17.09.2026 👁️ 1
Archbishop withdraws award from Muslim cleric who praised Bin Laden
The award was handed out last week, on the anniversary of the 9/11 attacks.
Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? - Vísir
Nafnið hefur verið vinsælt víða um heim, sérstaklega í enskumælandi löndum, og bera fjölmargir þekktir einstaklingar nafnið, þar með taldir þekktir le...
„Það tók viku að vinna í Rúriki“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
„Það tók viku að vinna í Rúriki“ - Vísir
Máni ræddi þetta og fleira við tónlistarmanninn og góðan vin sinn Friðrik Dór í þættinum Milli vina, sem er íslenskur menningarþáttur á Sýn þar sem tv...
Handrukkarinn sem frelsissvipti æskuvin sinn og niðurlægði hann kynferðislega fær þyngri dóm - „Sleiktu þetta“
📅 17.09.2026 👁️ 2
Handrukkarinn sem frelsissvipti æskuvin sinn og niðurlægði hann kynferðislega fær þyngri dóm - „Sleiktu þetta“
Landsréttur hefur þyngt refsingu eins sakborningsins í Vatnagarðsmálinu, en alls voru þrír dæmdir í málinu sem varðaði frelsissviptingu og hrottalegt ...
Inga svarar Guðmundi Inga fullum hálsi - „Ég er bara ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans “
📅 17.09.2026 👁️ 2
Inga svarar Guðmundi Inga fullum hálsi - „Ég er bara ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans “
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, sagði í kvöldfréttum RÚV að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefði krafist...
Ísak Berg­mann og Agnes Perla eiga von á barni - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Ísak Berg­mann og Agnes Perla eiga von á barni - Vísir
„Við verðum þrjú í byrjun apríl,“ skrifaði parið við sameiginlega færslu sem þau birtu á Instagram. Á myndinni má sjá Agnesi með Ísaki sem heldur á só...
„Skrýtið að sparka í fólk á þess veikustu stundu“
📅 17.09.2026 👁️ 2
„Skrýtið að sparka í fólk á þess veikustu stundu“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, segir að samtal Ingu Sæland, formann...
Enginn sannleikur – bara ólíkar upplifanir
📅 17.09.2026 👁️ 1
Enginn sannleikur – bara ólíkar upplifanir
„Hann er sár út í þetta allt saman. Ég skil það að mörgu leyti. Ég er líka sár og leið yfir að því sé verið að brigsla manni um ýmislegt sem á ekki vi...
„Ofsa­lega leið og sár yfir þessari fram­göngu hans“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
„Ofsa­lega leið og sár yfir þessari fram­göngu hans“ - Vísir
„Ég hringdi einu sinni í konuna hans til þess að spyrja hvernig Guðmundur hefði það og hvort hann gæti tekið á móti gestum og ég upplifi þetta ekki í ...
Óðinn segir þetta skýra nöp sumra við RÚV: „Auðvitað rauðir af skömm út af klúðrinu“
📅 17.09.2026 👁️ 2
Óðinn segir þetta skýra nöp sumra við RÚV: „Auðvitað rauðir af skömm út af klúðrinu“
Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Jónsson segir að frétt RÚV um klúðrið við lóðaúthlutun Hafnarfjarðarbæjar til Tækniskólans skýri hvers vegna sumum stjórnmálam...
Níu ákærðir í tengslum við stærsta kókaínsmygl sögunnar
📅 17.09.2026 👁️ 2
Níu ákærðir í tengslum við stærsta kókaínsmygl sögunnar
Níu karlmenn eru kærðir í tengslum við Straumsvíkurmálið svokallaða. Þar af eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír íslenskir. Ákæruvaldið hefur farið ...
Arnaldur vill verða forseti ASÍ
📅 17.09.2026 👁️ 2
Arnaldur vill verða forseti ASÍ
Arnaldur Grétarsson hefur tilkynnt framboð sitt til forseta Alþýðusambands Íslands.„Mér rennur blóðið til skyldunnar nú þegar ég skynja sterkt ákall u...
Nær fjórir af hverjum tíu bitnir - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Nær fjórir af hverjum tíu bitnir - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup þar sem þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar. 39 pró...
Einfaldur meirihluti dugir til að samþykkja breytingar á kosningalögum
📅 17.09.2026 👁️ 3
Einfaldur meirihluti dugir til að samþykkja breytingar á kosningalögum
Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja ti...
Nýtt innviðafélag á að veita vegfarendum valkosti
📅 17.09.2026 👁️ 2
Nýtt innviðafélag á að veita vegfarendum valkosti
Nýtt ríkisfyrirtæki, Göng & brú, sem ætlað er að hraða uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi, kynnti í dag áform sín fyrir innlendum og erlendum fj...
Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða - Vísir
David Gabríel var ákærður fyrir að stinga annan mann með hnífi mánudaginn 13. júní 2021. Atvikið átti sér stað á gatnamótum Hafnarstrætis og Naustanna...
Hvetur til þess að Reykjavík fái ekki að hafa þingmenn
📅 17.09.2026 👁️ 3
Hvetur til þess að Reykjavík fái ekki að hafa þingmenn
Jón Bjarnason fyrrum ráðherra og þingmaður Vinstri grænna er vægast sagt ósáttur við niðurstöðu starfshóps sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsm...
UK Youth Parliament looks set to be axed
📅 17.09.2026 👁️ 4
UK Youth Parliament looks set to be axed
Some say scrapping the parliament for 11 to 18-year-olds would be a blow for democracy, while others say it is overdue.
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir frelsissviptingu í Vatnagörðum
📅 17.09.2026 👁️ 3
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir frelsissviptingu í Vatnagörðum
Davíð Bjarni Thoroddsen var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir gróft ofbeldi og kynferðisbrot gagnvart æskuvini sínum sem hann fre...
Charles 'sounded giddily elated' after Diana died, Earl Spencer claims
📅 17.09.2026 👁️ 1
Charles 'sounded giddily elated' after Diana died, Earl Spencer claims
Buckingham Palace has strongly pushed back against claims in a new book by the late Princess of Wales's brother.
Ukrainian guilty of vandalism at mosques linked to Russian network behind Starmer arson attack
📅 17.09.2026 👁️ 3
Ukrainian guilty of vandalism at mosques linked to Russian network behind Starmer arson attack
Illia Bilyk, a 21-year-old Ukrainian man, has pleaded guilty to targeting five locations in east London.
Njörður telur tímabært að Íslendingar skipti um þjóðsöng – Leggur til að þetta verði sá nýi
📅 17.09.2026 👁️ 5
Njörður telur tímabært að Íslendingar skipti um þjóðsöng – Leggur til að þetta verði sá nýi
Njörður P. Njarðvík, rithöfundur og prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, telur tímabært að Íslendingar hugi að því að skipta...
Saka Wolt um að svíkja verkafólk um lágmarkskjör
📅 17.09.2026 👁️ 5
Saka Wolt um að svíkja verkafólk um lágmarkskjör
Stjórn Eflingar hefur lýst yfir samstöðu með sendlum Wolt á Íslandi, fram kemur í yfirlýsingu að störf sendla hjá Wolt og öðrum sambærilegum fyrirtækj...
Kinkaði kolli til barna sinna áður en hann var tekinn af lífi
📅 17.09.2026 👁️ 5
Kinkaði kolli til barna sinna áður en hann var tekinn af lífi
LeJames Norman, fertugur Bandaríkjamaður, var tekinn af lífi í Texas í gær, rúmum tveimur áratugum eftir að hann skaut þrjár manneskjur til bana í mis...
Opinberar loksins hvers vegna hann hætti í Flokki fólksins - „Þá fór mér nú að blöskra“
📅 17.09.2026 👁️ 4
Opinberar loksins hvers vegna hann hætti í Flokki fólksins - „Þá fór mér nú að blöskra“
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, hefur nú loksins greint frá aðdraganda þess að hann sag...
Warm words on Canada's EU 'associate membership' but no guarantees
📅 17.09.2026 👁️ 2
Warm words on Canada's EU 'associate membership' but no guarantees
There is no certainty that the idea will ever get off the ground, let alone become a blueprint for other countries, writes Katya Adler.
Nefnd á vegum SÞ segir Bandaríkin hafa framið stríðsglæpi í Íran
📅 17.09.2026 👁️ 4
Nefnd á vegum SÞ segir Bandaríkin hafa framið stríðsglæpi í Íran
Mannréttindasérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna segja rökstuddan grun um að Bandaríkjaher hafi framið stríðsglæpi í stríðinu í Íran með tveimur ár...
Sam­félags­miðlasér­fræðingur sækist eftir for­mennsku í ASÍ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 5
Sam­félags­miðlasér­fræðingur sækist eftir for­mennsku í ASÍ - Vísir
Arnaldur, sem er mannfræðingur að mennt, hefur starfað fyrir ASÍ frá 2021 en þá var hann ráðinn í starf samfélagsmiðlasérfræðings á skrifstofu samband...
Tillögur um ný kosningalög „örvæntingarfull tilraun Viðreisnar“
📅 17.09.2026 👁️ 4
Tillögur um ný kosningalög „örvæntingarfull tilraun Viðreisnar“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi segir tillögur að breytingum á kosningalögum gamalkunnar. Hann telur þetta örvæntingarfulla tilrau...
Samherji reynir að fá úrskurði hnekkt – Íbúi sem kærði segist vilja anda að sér hreinu lofti
📅 17.09.2026 👁️ 4
Samherji reynir að fá úrskurði hnekkt – Íbúi sem kærði segist vilja anda að sér hreinu lofti
Framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja segir óvissu um framhaldið hjá fiskþurrkuninni á Laugum, eftir að starfsleyfi þeirra var fellt úr gildi. Þeir le...
Ekki sama hvort það er skógarþröstur í Vesturbæ eða Kópavogi
📅 17.09.2026 👁️ 4
Ekki sama hvort það er skógarþröstur í Vesturbæ eða Kópavogi
Það er ekki sama hvort þú ert í Kópavogi eða Vesturbæ Reykjavíkur þegar þú hlustar á söng skógarþrasta. Skógarþrestir á Íslandi hafa nefnilega svæðisb...
Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 5
Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna - Vísir
Þetta segir Guðmundur Ingi Kristinsson í samtali við RÚV um samskipti sín við Ingu Sæland. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans en þ...
Hætti í flokknum eftir sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna - Vísir

Rússar hafi skipu­lagt fjölþáttaárás gegn Pól­landi - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 5
Rússar hafi skipu­lagt fjölþáttaárás gegn Pól­landi - Vísir
„Samkvæmt upplýsingum leyniþjónustunnar felur áætlun Rússa í sér fjölþáttaárásir með drónum og flugskeytum gegn löndum sem styðja Úkraínu, þar á meðal...
70% of foreign-language 112 emergency calls in the Canary Islands are in English
📅 17.09.2026 👁️ 4
70% of foreign-language 112 emergency calls in the Canary Islands are in English
The Canary Islands’ 112 emergency service handled almost 14,000 calls in languages other than Spanish during the first eight months of 2026, with Engl...
Ed Sheeran: Why is his tour in 'damage control mode'?
📅 17.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran: Why is his tour in 'damage control mode'?
US stadium owner Robert Kraft says Sheeran asked him to match his own $2m (£1.5m) donation for "aid in the region".
Skerða byggðakvóta um 1.200 tonn
📅 17.09.2026 👁️ 4
Skerða byggðakvóta um 1.200 tonn
Litlar og millistórar útgerðir biðu þess með óþreyju eftir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra gæfi út reglugerð um ráðstöfun þess afla sem rennur ...
Hætti í flokknum eftir að Inga krafðist afsagnar hans á sjúkrabeði
📅 17.09.2026 👁️ 4
Hætti í flokknum eftir að Inga krafðist afsagnar hans á sjúkrabeði
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, segir að Inga Sæland, formaður flokk...
Is Canada about to join the EU?
📅 17.09.2026 👁️ 4
Is Canada about to join the EU?
Ties between Canada and the European Union have been getting closer as trade dispute with the US continue.
Patterns Emerging in the 26/27 Premier League
📅 17.09.2026 👁️ 5
Patterns Emerging in the 26/27 Premier League
As the 2026-27 Premier League season gets underway, drama, tactical innovation and surprising results have been the order of the day with the return o...
Gugga lenti í hræðilegu atviki rétt fyrir fermingu – „Þetta var mikið sjokk og bara ekki gott fólk“
📅 17.09.2026 👁️ 5
Gugga lenti í hræðilegu atviki rétt fyrir fermingu – „Þetta var mikið sjokk og bara ekki gott fólk“
Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir eða Gugga varð landsþekkt ásamt manninum sínum, Jóa heitnum, eftir að Kompás gerði þátt um þau og þeirra neyslu fyrir mörg...
Markvissar aðgerðir skila árangri
📅 17.09.2026 👁️ 3
Markvissar aðgerðir skila árangri
Áhrif loftslagsbreytinga verða sífellt sýnilegri um allan heim og því leggja fyrirtæki og stofnanir aukna áherslu á að draga úr losun og taka þátt í o...
Spanish watchdog challenges extra paperwork for Canary Islands holiday-let owners
📅 17.09.2026 👁️ 4
Spanish watchdog challenges extra paperwork for Canary Islands holiday-let owners
 Holiday-let owners in the Canary Islands have been caught in a new regulatory dispute after Spain's competition watchdog questioned whether they shou...
Frestuðu ákvörðun um afturköllun lóða til tveggja trúfélaga
📅 17.09.2026 👁️ 5
Frestuðu ákvörðun um afturköllun lóða til tveggja trúfélaga
Borgarráð frestaði á fundi sínum í dag að taka ákvörðun um það hvort Reykjavíkurborg ætli að afturkalla lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi við ...