Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 8. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 27. apríl.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. grein laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
Umsækjendur:
- Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna
- Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur
- Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur
- Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri
- Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor
- Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur
- Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari