Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fjögurra prósenta fylgi frá síðustu bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi og myndi frá fimm sveitarstjórnarmenn í stað fjögurra, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Meirihlutinn í bæjarstjórn héldi, samkvæmt þessu, þrátt fyrir að Framsókn tapi nær helmingi fylgis síns og öðrum bæjarfulltrúanum.
Maskína kannaði fylgi flokkanna og var greint frá niðurstöðum könnunarinnar í Pallborðinu á Vísi í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa verið í meirihlutasamstarfi þetta kjörtímabil með samanlagt sex kjörna fulltrúa af ellefu í bæjarstjórn.
Samfylkingin mælist næststærst með 23,2 prósenta fylgi, fimmtán prósentum meira en í bæjarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum. Það myndi skila flokknum þremur bæjarfulltrúum í stað eins.
Næst koma Viðreisn (11,7%) og Miðflokkurinn (11,2%). Hvor um sig fengi einn bæjarfulltrúa. Þetta er einu prósentustigi meira en Viðreisn fékk í síðustu kosningum og Miðflokkurinn myndi samkvæmt þessu bæta við sig níu prósentustigum milli kosninga.
Aðrir flokkar næðu ekki inn kjörnum fulltrúa. Vinstri græn mælast með 5,5 prósent og Sósíalistaflokkurinn 3,3 prósent.
Hvorki Vinir Kópavogs né Píratar bjóða fram núna. Báðir flokkar voru í kjöri fyrir fjórum árum. Þá fengu þau framboð samtals 25 prósent atkvæða og þrjá sveitarstjórnarmenn.