Miklar breytingar hafa verið gerðar á fríhöfninni í Leifsstöð. Nýjar verslanir þýska fyrirtækisins Heinemann voru opnaðar formlega á hádegi í dag.
Ómar Svavarsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Isavia segir að gerðar hafi verið gagngerar breytingar á versluninni.
Eins og hálfs milljarðs fjárfesting
Endurhönnunin verslanarinnar hefur staðið yfir frá því Gebr. Heinemann tók við rekstri fríhafnarverslananna vorið 2025. Fjárfesting Heinemann er töluverð, um einn og hálfur milljarður. Max Heinemann, annar tveggja forstjóra Gebr. Heinemann segir sérstaka áherslu lagða á upplifun viðskiptavina.
Verðlag gagnrýnt
Verðlag í fríhöfninni hefur verið gagnrýnt til að mynda eru dæmi um að sælgæti í lágvöruverslun á Íslandi sé töluvert ódýrara en í fríhöfninni. Ómar segir að ýmsar áskoranir hafi blasið við í upphafi.
„Við erum nú komin yfir þær, en í samningum eru gerðar miklar kröfur til samanburðar á verðum bæði hér og innanlands og svo erlendis, Heinemann er þekkt fyrir töluverða samkeppni.“
Útlit fríhafnarinnar hefur breyst og hefur svæðið verið opnað meira. Inngangur brottfararverslunarinnar var rýmkaður úr 8 metrum í 38 metra og gerðar voru breytingar á afgreiðslukössum.
Sérstök áhersla lögð á íslenskar vörur
Vöruúrval hefur breyst eftir að Heinemann tók við rekstri verslunarinnar. Ný merki hafa verið flutt inn en rík áhersla hefur verið lögð á framboð innlendra vara í Heinemann fríhöfnum um heim allan. Um þriðjungur vöruúrvals eru íslenskrar vörur og að minnsta kosti 370 m² eru tileinkaðir íslenskum vörum.
„Íslenskar vörur eru um 30% af öllu vöruúrvali hér, á heimsvísu nær engin upp fyrir 24%, á heimsvísu nær enginn yfir 24%, þannig líka erum við að sjá styrk verslunarinnar, þetta ers samkeppnishæf verslun bæði í útliti, upplifun og verði.“
Ýmsar nýjungar eru í nýju versluninni en til að mynda rúntar vélmennið Valli um og kynnir vörur.
Fyrir utan fríhöfnina hefur verið komið fyrir fjórum vatnskrönum en listamaðurinn Juan Arctic sá um að skreyta vegginn við vatnsbrunnanna.