„Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála og ég undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.
„Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags – og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur.“
Í tilkynningunni segir einnig að Denys Shmyhal, orkumálaráðherra Úkraínu, og Rustem Umerov, yfirmaður Leyniþjónustu Úkraínu, hafi einnig verið á fundinum. Hann sótti einnig Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi.
Sjá einnig: Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði
Forsetinn úkraínski kom hingað til lands eftir að hann og teymi hans voru í Noregi þar sem Selenskí sótti jarðarför Haralds Noregskonungs. Gera má ráð fyrir því að Selenskí sé farinn af landi brott.
Fréttin hefur verið uppfærð.