Kristrún hefur mál sitt klukkan 19:40 og fær hún tólf mínútur til. Umræður um ræðuna skiptast svo í tvær umferðir og fá fulltrúar annarra flokka en Samfylkingarinnar, flokks Kristrúnar, sex mínútur hver. Í seinni umferð fá fulltrúar þingflokkanna allir sex mínútur hver.
Guðmundur Ingi Kristinsson er utan flokka svo hann fær að halda síðustu ræðuna í fyrri umferð. Hann hefur þó einungis fimm mínútur.
Ræðumenn kvöldins
Samfylkingin
- Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í fyrri umferð
- Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í seinni umferð
Sjálfstæðisflokkur
- Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrri umferð
- Jens Garðar Helgason, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, í seinni umferð
Viðreisn
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í fyrri umferð
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í seinni umferð
Miðflokkurinn
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð
- Bergþór Ólason, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð
Flokkur fólksins
- Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í fyrri umferð
- Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í seinni umferð
Framsóknarflokkur
- Stefán Vagn Stefánsson, 5. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í fyrri umferð
- Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þingmaður Norðausturkjördæmis, í seinni umferð
Þingmaður utan flokka
- Guðmundur Ingi Kristinsson, 6. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð