Valdimar Breiðfjörð Birgisson, fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir það mistök að byggja ekki upp skíðasvæðið í Skálafelli. Valdimar var gestur í Síðdegisútvarpinu í dag.
Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað undanfarin fjögur ár. Hávær umræða er um að hætta við alla frekari uppbyggingu á svæðinu í stað þess að opna það aftur. Samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins samþykkti nýverið að óska eftir því að stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu endurskoði samkomulag frá árinu 2018 um uppbyggingu á svæðinu.
Í síðdegisútvarpinu í gær var rætt við Magnús Benediktsson, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Hann vill fresta uppbyggingu í Skálafelli, kostnaðurinn sé einfaldlega of mikill.
Valdimar segir að allt mæli með því að byggja upp svæðið í Skálafelli. Með möguleikanum á Skálafelli fjölgi þeim dögum sem skíðasvæðin eru opin því veður í Bláfjöllum geti verið ótryggt. Þegar vindur er mikill í Bláfjöllum sé oft lygnara í Skálafelli.
Aðstæður eru að mörgu leyti betri í Skálafelli, að sögn Valdimars. Hann segir brekkurnar lengri og fjölbreyttari, auk þess sem að þar sé lögleg stórsvigsbrekka. Jafnframt endist snjórinn lengur fram á vorið en í Bláfjöllum.
Hann bætir því við að uppbyggingin í Bláfjöllum sem hófst 2018 hafi skilað sér í fleira skíðafólki og svæðið sé löngu sprungið. Það geti skapað hættulegar aðstæður ofan í bílastæða- og samgönguvandamál.
Dregur áætlaðan kostnað í efa
Áætlaður kostnaður við uppbygginguna nemur fimm til sex milljörðum króna. Spurður um hvort peningar séu til fyrir því segir Valdimar málið snúast um forgangsröðun.
„Eru til peningar? Það er alltaf hægt að segja já og alltaf hægt að segja nei. Í stóra samhenginu þá eru þetta ekkert svo rosalega stórir peningar. Hér eru golfvellir úti um allt. Gætu menn hugsað sér að hafa einn golfvöll á höfuðborgarsvæðinu og svo framvegis? Þannig að það hefur sýnt sig að betri aðstæður búa til fleira skíðafólk. Þá fara fleiri á skíði. Þetta er fjölskyldusport.“
Jafnframt dregur hann áætlaðan kostnað í efa.
„Ég hef það á tilfinningunni að fólk hafi kannski slengt fram sem hæstri tölu. Það er svona aðferð til þess að gera ekki hlutina. Það eru til ýmsar aðferðir til þess að gera ekki neitt og þetta er ein af þeim.“
Valdimar segir málið vera í höndum bæjar- og borgarstjóra sem þurfi að taka ákvörðun um framhaldið. „Og ég hvet þau til þess að vera jákvæð gagnvart því að opna Skálafell og það sem fyrst. Ég held að við Mosfellingar værum alveg til í að sjá einhvers konar opnun.“