Réttarhöldunum lauk án niðurstöðu vegna þessa síðasta kviðdómanda en þá höfðu kviðdómendur reynt að ná saman í málinu í sjö daga.
Sá síðasti sagðist ekki tilbúinn til að segja hana ósakhæfa. Maðurinn viðurkenndi þó seinna fyrir öðrum í kviðdómnum að hann væri með efasemdir um afstöðu sína, sem ætti samkvæmt tilmælum dómarans til kviðdómenda að duga til sýknu.
Þrír úr kviðdómnum hafa rætt við blaðamann í Boston og var formaður kviðdómsins þeirra á meðal. Hún sagði að á einum tímapunkti hafi allir verið sannfærðir um að málinu væri lokið, þegar síðasti kviðdómandinn viðurkenndi að hann hefði efasemdir.
Samkvæmt AP fréttaveitunni sagðist formaðurinn, sem heitir Ronni Carlson, hafa verið byrjaður að fylla út skjöl kviðdómsins um niðurstöðu þeirra þegar maðurinn bætti við:
„Ég ætla samt ekki að sýkna hana vegna geðrænna vandamála.“
Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. Hún lamaðist fyrir neðan mitti við fallið.
Lindsay Clancy kyrkti þrjú ung börn sín með æfingarteygjum og reyndi svo að svipta sig lífi.
Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Hún hafði ítrekað leitað sér aðstoðar og skömmu fyrir morðin lagði hún sjálfa sig á geðdeild.
Hún var útskrifuð þaðan nítján dögum áður en hún myrti börnin.
Sjá einnig: Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín
Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða.
Símtal eiginmanns Clancy til neyðarlínunnar var spilað í dómsal en í viðtalinu segja konurnar þrjár að þetta hafi verið eitthvað það versta sem þær hafi heyrt. Það hafi aftur verið spilað þegar kviðdómendur voru að reyna að ná saman um niðurstöðu og þá hafi fólk brostið í grát.
Sjá einnig: „Hún drap börnin“
Málið gegn Clancy hefur verið mikið á milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð.
Segja manninn hrokafullan
Kviðdómendur sendu dómaranum þrisvar sinnum skilaboð um að þeir næðu ekki saman um niðurstöðu en hann bað þá alltaf um að reyna aftur. Þá sendi Carlson sérstök skilaboð til dómarans um að tólfti kviðdómandinn neitaði að fylgja skipunum hans hvað varðar efasemdir.
Paula Devlin, annar kviðdómandi sem ræddi málið við blaðamann, sagði að maðurinn hefði verið hrokafullur við aðra í kviðdómnum.
Kevin Reddington, lögmaður Clancy, segist sannfærður um að þessi eini maður hafi komið í veg fyrir sýknu hennar. Skömmu eftir að réttarhöldunum lauk sagði hann að þessi maður hefði „stolið“ sjö vikum af öðrum í kviðdómnum.
Framhaldið enn óljóst
Kviðdómendur stóðu frammi fyrir nokkrum kostum í réttarhöldunum. Einn var sekt og þá þurftu allir að vera þeirrar skoðunar að saksóknarar hefðu sannað að Clancy hefði bæði framið glæpinn og væri sakhæf.
Dómarinn hafði áður sagt kviðdómendum að Clancy væri ekki sakhæf ef hún hefði átt við geðrænan vanda að stríða sem hefði komið í veg fyrir að hún hefði stjórn á aðgerðum sínum eða skyldi þær að fullu.
Ef niðurstaðan hefði verið sekt hefðu kviðdómendur þurft að velja á milli misalvarlegra ákæra, en munurinn þar á milli hefði verið lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn í framtíðinni eða möguleiki á reynslulausn.
Hefðu kviðdómendur sýknað Clancy hefði hún að öllum líkindum verið úrskurðuð á réttargeðdeild.
Að endingu urðu kviðdómendur ekki sammála og réttarhöldunum lauk án niðurstöðu.
Hvert framhaldið verður liggur ekki fyrir. Mögulega verður réttað yfir Clancy aftur, en lögmaður hennar segir að hún hafi ekki heilsu til þess. Saksóknarar og lögmaður hennar gætu þess í stað komist að einhverskonar samkomulagi. Þá gætu saksóknarar einnig ákveðið að láta málið niður falla, en það þykir verulega ólíkleg niðurstaða.