„Ég held að þetta verði mjög erfiður vetur fyrir ríkisstjórnarflokkana og þær augljóslega ætla ekki að gefa neitt eftir. Það var allavega ekki verið að rétta fram neina sáttarhönd af einhverju viti og við sjáum hvernig gneistar á milli Miðflokksins og Viðreisnar,“ segir Ásthildur Sturludóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur.
Forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína og þingmenn brugðust við með ræðum. Magnús Geir Eyjólfsson ræddi við Ásthildi og Eyrúnu Magnúsdóttur, ritstjóra Gímaldsins, að loknum þingfundi. Viðtalið við þær má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Ásthildur segir efnahagsástandið ekki hjálpa ríkisstjórninni og ýmsum málum verði erfitt að koma í gegn, til dæmis fjárlögunum.
„Þeir eru alltaf tilbúnir í stríð,“ segir Ásthildur um Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, þingmenn Miðflokksins. Þeir séu tilbúnir að fylgja sinni afstöðu mjög fast eftir og hafi sýnt að þeir séu tilbúnir að standa í ræðustól eins lengi og þörf sé á. Engin spurning sé um óvild milli Viðreisnar og Miðflokksins og Þorgerður Katrín Gunnlaugsdóttir, formaður Viðreisnar, hafi sannarlega ekki rétt sáttarhönd til þingsins. „Hún sendi pillur víða.“
Eyrún tekur undir: „Það var harðari tónn í henni en í Kristrúnu.“ Meiri ástríða hafi einkennt ræður stjórnarflokkanna í kvöld, ræður stjórnarandstöðunnar hafi verið tæknilegri.
„Hæ queen“
Eyrún segir áhugavert að ræða forsætisráðherra hafi að miklu leyti verið upptalning á afrekum Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra.
„Maður upplifði það svolítið í þessu að hún kæmi sem einhvers konar drottning ríkisstjórnarsamstarfsins. Þær voru greinilega mjög ánægðar með hana, bæði Kristrún og Þorgerður,“ segir Eyrún. Fyrir ræðuhöld hafi Kristrún heilsað Ingu með orðunum „hæ queen“.
Ásthildur segir Flokk fólksins geta verið mjög stoltan af sínu. Um upptalningu Kristrúnar á afrekum ríkisstjórnarinnar segir Ásthildur: „Ég held að hún hafi verið að reyna að lýsa draumaheiminum sem hún vill sjá og það er ekkert endilega allt sem búið er að ná árangri í þó að hún hafi farið yfir það.“
Eyrún segir að það hafi komið sér á óvart að Kristrún hafi sagt að sátt hafi náðst í útlendingamálum og bendir á mótmæli á frumvarpi um brottvísunarstöð. „Ég veit ekki alveg hvar þessi sátt er, en þarna er hún kannski að vísa í að það hafi verið mjög breið sátt í þinginu.“
Flokkar sem hefðu mótmælt frumvarpinu séu ekki á þingi.