Kanadískur maður þurfti að hlusta á þegar dóttir hans var drepin af skógarbirni í gegnum símann. Hann gat ekkert gert til að hjálpa á meðan.Breska blaðið Express greinir frá þessu.Faðirinn, Hubert Esquirol, greinir frá málinu sem kom upp í ágúst árið 2020. En þá hafði dóttir hans, hin 44 ára Stephanie Blais, farið í sumarbústað með eiginmanni sínum Curtis og þremur börnum í norðurhluta Saskatchewan héraðs um miðbik Kanada.
Var í símanum við dóttur sína þegar hún dó – „Hún sá hann ekki“