Í fréttatilkynningu þess efnis segir að áður hafi Sigrún starfað hjá Mílu í fjórtán ár og þar af tíu ár sem fjármálastjóri. Auk þess hafi hún starfað í viðskiptagreind hjá Kaupþingi, við verðútreikninga og kostnaðargreiningu hjá heildsölu Símans og við endurskoðun hjá Ríkisendurkoðun. Sigrún sé í stjórn Rarik.
„Við erum afar ánægð að hafa fengið Sigrúnu til liðs við Póstinn. Hún býr yfir víðtækri reynslu í fjármálastjórnun, reikningshaldi og greiningu og hefur mikla þekkingu á þeim kerfum sem við notum. Ráðning Sigrúnar styrkir fjármálasviðið enn frekar og mun hún gegn lykilhlutverki í áframhaldandi þróun og faglegum rekstri reikningshalds Póstsins,“ er haft eftir Gunnari Þór Tómassyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Póstsins.
Þá er haft eftir Sigrúnu að starfið leggist vel í hana.
„Hér ríkir greinilega góður starfsandi og það hefur verið tekið einstaklega vel á móti mér. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri spennandi vegferð sem Pósturinn er á í breyttu rekstrarumhverfi.“