Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður Ísland - Þvert á flokka, hefur kært þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu til úrskurðarnefndar kosningamála. Kæran er send inn af Loga Kjartanssyni lögmanni fyrir hönd Sigfúsar og Þrastar Jónssonar. Sigfús greinir frá þessu á Facebooksíðu samtaka sinna en einnig er fjallað um kæruna á vef Heimildarinnar:
Sigfús kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna: „Eiginlega eru þessar kosningar ógildar“