Sextán ára drengur lést eftir að hafa verið stunginn með hnífi, í árlegri busavígslu, í dönsku borginni Hróarskeldu í gærkvöldi.
Jafnaldri hans hefur verið handtekinn og verður ákærður fyrir morð.
Í tilkynningu frá Himmelev-skólanum segir að nemendum og kennurum verði boðið upp á áfallahjálp í dag en drengurinn sem lést var nemandi við skólann.
Lést af sárum sínum á sjúkrahúsi
Drengurinn var stunginn nokkrum sinnum bæði í bak og bringu. Hann var fluttur á sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn þar sem hann lést af sárum sínum.
Í tilkynningu frá dönsku lögreglunni segir að ástæða árásarinnar séu átök milli drengjanna.
Sá handtekni hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10.september. Hann neitar sök.