Talið er að rútan hafi oltið.
Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.
Enn er verið að reyna að ná utan um málið, og verða frekari upplýsingar veittar síðar að sögn Bryndísar.
Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri hjá Almannavörnum, staðfestir að hópslysaáætlun hafi verið virkjuð.