Sex eru látnir eftir að ferja lenti í sjávarháska í Jövuhafi í nótt í slæmu veðri og miklum öldugangi.
Ferjan var á leið frá borginni Surbaya á eyjunni Jövu til borgarinnar Banjarmasin í Borneo. 243 farþegar og áhöfn voru um borð.
Samband slitnaði við ferjuna í nótt þegar hún var um 150 kílómetrum suður af Banjarmasin. og leitar- og björgunaraðgerðir hófust strax. 107 hefur verið bjargað en um 130 manns er enn saknað.
Um 300 manns taka þátt í björgunaraðgerðunum en aðstæður til leitar eru erfiðar vegna öldugangs.