Hægt er að bjarga hátt í 1,6 milljónum mannslífa á ári og spara heimsbyggðinni stórar fjárhæðir með því að grípa til aðeins sex ráðstafana í heilbrigðis- og loftslagsmálum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Skýrslan er eins konar upphitun fyrir 31. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst í Antalya í Tyrklandi í næstu viku. Þar kemur fram að þessar ráðstafanir geti komið í veg fyrir útblástur koltvísýrings upp á 16,7 milljarða tonna á hverju ári. Fjárútlát myndu dragast saman um 5,5 milljarða bandaríkjadala og efnahagurinn að auki styrkjast um hátt í fjóra milljarða bandaríkjadala.
Ráðstafanirnar eru eftirfarandi:
- Heilsufarsviðvörunarkerfi vegna hita. Fram kemur að 57 lönd hafi ekki haft slíkt kerfi árið 2023. Svona kerfi kæmi einkum í veg fyrir ótímabær dauðsföll hjá ungum börnum og fólki sem vinnur utan dyra.
- Tryggja öruggt drykkjarvatn til að aðlagast loftslagsbreytingum. Slíkt er oft af skornum skammti þegar öfgar verða í veðri. Til dæmis hafa niðurgangur og kólera oft komist í drykkjarvatn í flóðum.
- Auka hreinlæti í löndum sem loftslagsbreytingar herja á. Þessi vandi er oft á sömu stöðum og þar sem aðgengið að drykkjarvatni skerðist. Tryggja þarf gott hreinlætis- og fráveitukerfi til að smitsjúkdómar berist ekki meðal íbúa.
- Auka aðgengi að handþvotti. Tryggja að fólk geti hreinsað hendur þegar afleiðingar loftslagsbreytinga, einkum öfgar í veðurfari, herja á. Slíkt dregur einnig úr smitsjúkdómum.
- Hreinni orka á heimilum. Ofnum og hellum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði skipt út fyrir gas- og rafmagnsofna.
- Breyta skattlagningu á jarðefnaeldsneyti. Dregið verði úr niðurgreiðslum á jarðefnaeldsneyti og skattleggja það þannig að sá sem mengar borgi fyrir það.
Útreikningar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar benda til þess að aðgerðirnar bjargi 1,56 milljónum mannslífa á ári. Kostnaðurinn við þessar aðgerðir er áætlaður 35,4 milljarðar bandaríkjadala en stofnunin segir að hver dollari sem settur er í verkið myndi skila 24 dollurum til baka.