Opnunarathöfnin hefst klukkan 10 í dag og stendur yfir til klukkan 11. Halla Tómasdóttir mun þar setja tónlistarhátíðina formlega af stað áður en söngkonan Rakel og hljómsveitin Lón troða upp fyrir gesti.
Fjöldi góðra gesta er mættur á opnunarathöfnina: forsetahjónin, íbúar á Grund, Pétur Þorsteinsson æskulýðsfulltrúi á Grund, leikskólabörn úr hverfinu, bransafólk og aðrir tónlistaráhugamenn.
Hægt er að fylgjast með athöfninni í beinu streymi hér að neðan:
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefur verið haldin árlega síðan 1999 og er einn stærsti menningarviðburður hér á landi ár hvert. Hátíðin fer alla jafna fram þriðju helgina í október en stendur í ár yfir dagana 4. til 8. nóvember.