Borgarráð fundaði í morgun um uppsagnir og skipulagsbreytingar á tveimur sérsviðum innan borgarinnar, samkvæmt heimildum Vísis snúast skipulagsbreytingarnar meðal annars að svæðismiðstöðvum Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars er veittur stuðningur við börn, ungmenni, fjölskyldur, aldraða og fatlaða. Búist er við að fundargerð borgarráðs verði birt síðar í dag. Heimildir Mbl segja að á sjötta tug starfsmanna muni missa vinnuna og að sparnaðurinn verði upp á um 900 milljónir á ári.
Setja spurningamerki við uppsagnirnar hjá borginni: „Besta leiðin til þess að moka skattfé í einkavasa“