Borgarfulltrúi Vinstrisins segir nýja fjárhagsáætlun meirihlutans gefa til kynna að óvissu- og óreiðuástand sé fram undan í rekstri borgarinnar. Margt sé óskýrt og hagræðingartillögur séu óútfærðar.
Fjárhagsáætlun meirihlutans óskýr og skorti yfirsýn
Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir á að borgarsjóður skili 2,8 milljarða króna afgangi á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem kynnt var í gær. Á næstu fimm árum er stefnt að því að borgarsjóður verði rekinn með 16,8 milljarða króna afgangi.
„Það er ýmislegt mjög óskýrt. Það skortir yfirsýn og það er talað um niðurskurð til þess að geta fjárfest í grunninnviðum. En svo þegar maður rýnir í tölurnar þá erum við ekki að sjá það í þessari fjárhagsáætlun eða fjárfestingaáætlun,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins.
„Þannig þetta er í raun svona óvissu- og óreiðuástand sem Vinstrið sér fram undan sem skrifast alfarið á þessa flokka.“
Þá eigi eftir að útfæra ýmsar hagræðingartillögur.
„Sem dæmi þá er um rúmlega 900 milljónir hjá skóla- og frístundasviði sem á eftir að útfæra og það á við á fleiri sviðum, að það eigi eftir að útfæra ákveðinn niðurskurð og ekki liggur fyrir hvernig slíkt verði gert.“
Uppsagnir starfsmanna kosti meira til framtíðar
Í lok síðasta mánaðar var ráðist í hagræðingaraðgerðir í borginni ogtugum starfsmanna var sagt upp. Sanna segir slíkar aðgerðir vekja upp spurningar um hvaða skilaboð meirihlutinn sé að senda út þegar kemur að Reykjavíkurborg sem vinnustað.
„Vinstrið hefur gagnrýnt þessar aðgerðir og sérstaklega hvað þetta er harkalegt gagnvart starfsfólki og að við séum að missa þekkingu sem glatast. Við höfum bent á að við sjáum fyrir okkur að þetta muni kosta jafnvel meira inn í framtíðina ef það er ekki búið að undirbúa vel og fara yfir hvaða verkefni þetta eru. “
Þá hyggst meirihlutinn selja fyritæki í eigu borgarinnar. Sanna segir þetta áhyggjuefni. Mikilvægt sé að standa vörð um eignir almennings.
„Það á ekki að vera hlutverk borgarfulltrúa að koma eignum almennings í sölu til einkafjárfesta, til einkaaðila. Um leið og einkaaðilar eru komnir að rekstrinum vakna upp ýmsar spurningar, hvaða áhrif það muni hafa á gjaldskrár og verð sem almenningur er að greiða fyrir grunnþjónustu.“