Tinna Bjarnadóttir, blómaskreytir á Selfossi, ætlar að taka þátt í heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum í Singapúr í júlí. Hún er fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í keppni sem þessari. Hún er með sína eigin blómabúð í miðbænum á Selfossi, sem heitir Blómahúsið 1905, en nú er það heimsmeistarakeppnin sem á hug hennar allan.
Tinna og aðstoðarmaður hennar eru við æfingar í skemmu rétt fyrir utan Selfoss alla daga enda stórt og mikið verkefni að taka þátt í alþjóðlegri heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum fyrstu dagana í júlí í Singapúr.
„Þetta eru fjögur verkefni sem allir gera. Þrjú eru undirbúin, það er það sem þið sjáið hérna, sem við erum að vinna í og það eru ákveðin þemu sem við erum að vinna út frá,” segir Tinna.
Hvaða hráefni ertu að nota?
„Í grunninn erum við að nota járn og rauðamöl og svo verður svolítið af mosa. Við erum að reyna að ná aðeins íslenskri náttúru með okkur. Það er verið að biðja um óhefðbundin efni og rauðamöl er ekki að finna alls staðar og svo er ég að bólstra tvö sæti með roði, þannig að við erum að taka Ísland svolítið með okkur út,” segir Tinna.
Tinna, sem er eini keppandinn frá Íslandi, segir að blóm þurfi að vera 40 prósent af skreytingunum. Hún mun taka um 300 kíló af alls konar varningi með sér út í keppnina.
Leggst þetta ekki bara vel í þig?
„Þetta leggst mjög vel í mig. Núna er nógu stutt í þetta þannig að ég er orðin meira spennt en stressuð,” segir hún hlæjandi.
Tinna og Bjarmi Fannar, aðstoðarmaður hennar, leggja af stað til Singapúr mánudaginn 29. júní en keppnin fer fram dagana 4. til 6. júlí.
„Það eru bara forréttindi og heiður að fá að vera með Tinnu í þessu verkefni, ég á ekki til orð yfir hvað þetta er geggjað,” segir Bjarmi Fannar.
Heldur þú að hún eigi eftir að ná góðum árangri?
„Heyrðu, hún á eftir að vinna þetta, hún verður heimsmeistari því fyrir mér er hún heimsmeistari, heldur betur, topp tveir allavega í keppninni,” segir Bjarmi Fannar stoltur og ánægður með Tinnu.