Hópur skólaliða í Reykjavík hefur fengið uppsagnarbréf og störfum þeirra hefur verið útvistað. Formaður Sameykis segir borgina ekki í neinum takti við raunveruleikann.
Eitt af áhersluverkefnum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem tók við í vor var hagræðing.
Á verkefnalista meirihlutans er m.a. að fækka millistjórnendum, innleiða áhættustýringu, auka skilvirkni, fylgjast betur með útgjöldum, setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og hagræða um milljarð á ári.
Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins. Þar starfa um 11.000 og Kári Sigurðsson, formaður stærsta stéttarfélagsins, Sameykis, sem er með um 6.000 borgarstarfsmenn, segir sitt fólk hafa þungar áhyggjur.
„Þær eru þær að fyrirhugaðar séu stórar aðgerðir á næstunni. Jafnvel núna fyrir mánaðamót,“ segir Kári.
Hann segir ástæðu til að hafa þessar áhyggjur. „Núna í síðustu viku kom skólaliði til okkar, honum var sagt upp. Þá kemur í ljós að í júlí var útvistað endanlega þrifum í skólum í Reykjavík sem þýðir að það eru væntanlega allnokkrir skólaliðar sem er búið að segja upp hjá borginni.“
Fjöldi þeirra sem sagt var upp hefur ekki fengist staðfestur, segir Kári. Oddvitar meirihlutaflokkanna í borginni gáfu ekki kost á viðtali.
Lægst launuðu störfin
Skólaliðar sinna gjarnan ræstingum eftir að kennslu lýkur á daginn og veita nemendum stuðning í námi og leik fram að því.
„Þetta eru störf sem eru þau lægst launuðu hjá borginni og eru að fara nú til einkaaðila. Ég get illa séð að þetta sé einhvers konar hagræðing á endanum fyrir borgarbúa að útvista svona verkefni. “
Meirihluti þeirra um tíu upplýsingafulltrúa hjá borginni sem sagt var upp fyrr í sumar er í Sameyki og þrátt fyrir ítrekaðar óskir félagsins um rökstuðning uppsagnanna hafa þær ekki borist, að sögn Kára.
„Í raun og veru eru það mikil vonbrigði að þær upplýsingar liggi ekki fyrir nú þegar.“
Segir að beðið sé um að ganga í önnur störf
Eftir uppsagnirnar er einungis einn upplýsingafulltrúi starfandi hjá Reykjavík. Kári segir brögð að því að starfsfólk borgarinnar hafi verið beðið um að sinna störfum upplýsingafulltrúa.
„Meðal annars að skrifa á heimasíðu borgarinnar sem er ekki í starfslýsingu þessa fólks. Auðvitað gengur það ekkert upp.“
Ekkert bendir til annars en að verðbólga verði yfir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga í næstu viku og að þá virkist heimild til að segja þeim upp. Kári segir aðgerðir og framferði Reykjavíkurborgar ekki til þess fallið að stuðla að sátt á vinnumarkaði.