Skemmdarverk voru unnin í skjóli nætur við Grafarvogskirkju þegar málað var yfir hinsegin fána sem hefur skreytt tröppurnar fyrir framan kirkjuna undanfarin ár. Lögreglan hefur málið nú til skoðunar en það er rannsakað sem hatursglæpur. Samkvæmt vefsíðu Neyðarlínunnar er orðið hatursglæpur regnbogahugtak um það þegar refsivert brot er framið vegna fordóma eða haturs sem gerandi hefur í garð hópsins sem þolandi er hluti af. Verknaðurinn getur eins beinst að hópi í heild sinni.
Segja skemmdarverkið stilla fánunum upp sem andstæðum - „Ég er Íslendingur og þetta er ekki gert í mínu nafni“