Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga undrast vinnubrögð ríkisins við reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir og telur að með henni sé ríkið að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 19. mars 2025.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn sambandsins. Þar segir að samkomulagið kveði á um að ríkið taki að sér framkvæmd og beri ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett séu utan heimilis en þessi börn hafi að jafnaði verið um 35 á landinu öllu.
Með nýrri reglugerð hafi ríkið aftur á móti einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið. Settar hafi verið kerfislegar skorður sem útiloki börn frá aðgengi að viðeigandi úrræðum þar sem ríkið standi straum af kostnaði, þrátt fyrir mat sérfræðinga á þörf þeirra fyrir fjölþætta þjónustu.
Ríkið gangi á bak orða sinna
Enn fremur segir í yfirlýsingunni að engin fagleg rök séu fyrir því af hverju ríkið ætti ekki að sinna þessum börnum, eingöngu fjárhagsleg rök, en ríkið hafi greitt fyrir úrræði hópsins í fyrra á grundvelli samkomulagsins. Kostnaður vegna þjónustu við þessi börn sé einfaldlega meiri en ríkið hafði gert ráð fyrir og því hafi ríkið ákveðið einhliða að endurskilgreina þessa hópa 15 mánuðum eftir að hafa undirritað samkomulag um ábyrgðarskiptingu við sveitarfélögin.
Stjórnin ítrekar að samkomulagið snerist um breytta ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga til framtíðar en ekki um það að ríkið myndi leggja málaflokknum til ákveðið fjármagn. Ríkið hafi tekið að sér ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustu við þennan hóp og það sé óásættanlegt að ríkið ætli nú að skilgreina hópinn með öðrum hætti en samið hafi verið um þar sem það fjármagn sem ríkið hafi ætlað málaflokknum sé ekki fullnægjandi.
Þetta snúist ekki aðeins um einstaka reglugerð heldur traustið á milli ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafi undirritað samkomulagið 19. mars 2025 í góðri trú um að þar væri lagður sameiginlegur grunnur að betri þjónustu við börn með flóknar þarfir. Nú sé ríkið að ganga á bak orða sinna. Það hljóti að vekja upp alvarlegar spurningar hjá sveitarfélögum um traust og trúverðugleika ríkisins þegar kemur að því að standa við gerða samninga.