Skerðing hefur orðið á þjónustu Reykjavíkurborgar við niðurskurð meirihlutans eða á eftir að koma fram, segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. Hann segir að starfsfólk Reykjavíkurborgar hafi upplýst meirihlutann um þetta.
„Þá skiptir ekki máli hvort þú sért að tala um félagsráðgjafa, fólk í frístundageiranum, forstöðumenn félagsmiðstöðva, frístundaheimila, talmeinafræðinga, sálfræðinga, fólk á velferðarsviðinu eða á skóla- og frístundasviðinu, þau eru öll með sömu söguna. Þau eru að segja við meirihlutann núna að það sé þjónustuskerðing eða að hún sé á leiðinni. Þau hafa áhyggjur og það vantar að það sé hlustað á þau. Það er vont að heyra meirihlutann tala um einhvers konar samráð en þetta er auðvitað bara eftirásamráð.“
Þetta sagði Kári Sigurðsson í Morgunútvarpinu. Hann fagnar orðum Einars Þorsteinssonar, formanns borgarráðs, í sama þætti í gær um að niðurskurðurinn verði rýndur og mögulega endurskoðaður. Kári efast um forgangsröðun verkefna, telur að farið sé of geyst í að klára þau og óvíst sé að yfirlýstur sparnaður náist. Niðurskurðurinn hafi áhrif á allt kerfið og skerði grunnþjónustu.
„Ef þú ætlar að bæta þjónustuna á sama tíma og þú ætlar að henda fólki út þá þarf einhver annar að taka ábyrgðina og þá eykst ábyrgðin hjá einhverjum öðrum og það þarf að greiða fyrir það.“
Ekkert minnst á aðkeypta þjónustu
Kári gagnrýnir að ekki hafi verið minnst á aðkeypta þjónustu hjá borginni. „Þetta er risastór kostnaðarliður hjá borginni. Borgin er í fjárhagsvandræðum. Af hverju er ekki horft á þennan kostnaðarlið? Það er verið að útvista verkefnum og kaupa þjónustu. Þá er ég að tala um að kaupa ráðgjafarþjónustu. Það er verið að kaupa skýrslugerð. Ef það á að vera aðhald, þá skal vera aðhald alls staðar, ekki bara á sumum stöðum. [...] Þau fóru strax í hjartað á borginni. Þau fóru í skóla- og frístundasvið og velferðarsvið. Þetta eru þau svið sem sinna grunnþjónustunni.“