Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti segir þá umræðu sem eigi sér stað um auðlindir Íslands og Evrópusambandið óneitanlega sérstaka. Það eigi bæði við um það sem heyrist frá ráðherrum og stjórnarþingmönnum og þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Bæði stjórn og stjórnarandstaða haldi því á lofti að samþykki þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslunni í sumarlok að taka upp á ný viðræður um aðild að Evrópusambandinu að þá verði í slíkum viðræðum að tryggja yfirráð Íslendinga yfir sínum náttúruauðlindum. Það sé hins vegar alveg ljóst að hvert og eitt aðildarríki sambandsins eigi sínar náttúruauðlindir.
Margrét ræðir þetta í viðtali við Meginlandið hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar:
„Mér hefur einmitt fundist aðeins sérstakt í umræðunni í rauninni bæði hjá stjórnvöldum og stjórnarandstæðingum að þeir hafa verið að tala um að við þyrftum að tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar í aðildarviðræðum. En það er nú bara þannig að aðildarríki ESB þau eiga sjálf vatns-. og orkuauðlindir sínar. Löggjöf ESB fjallar ekkert um eignarhald á auðlindum eða nýtingu auðlindanna. Auðlindin sjálf er bara í eigu aðildarríkja ESB og líka arðsemin af þeim.“
Löggjöf
Margrét segir að hins vegar setji Evrópusambandið ýmis konar löggjöf varðandi undirbúning fyrir nýtingu auðlinda t.d. með lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Einnig hafi verið komið á lögum um innri markað með raforku, orkunýtni og orkuöryggi:
„En það að auðlindin færist á einhvern hátt í eigu ESB það er bara ekki rétt.“
Margrét ræðir þetta og margt fleira sem snertir hugsanlegt áframhald aðildarviðræðna Íslands við ESB við Helgu Völu Helgadóttur sem hefur umsjón með þættinum sem nálgast má í heild sinni hér fyrir neðan.