Leikkonan Sandra Bullock rifjar upp að hafa farið í áheyrnarprufur fyrir „perverta“ þegar hún var ung leikkona að reyna að koma sér áfram í leiklistrabransanum.„Þú skilur þetta,“ byrjaði hún í spjalli við nána vinkonu sína Jennifer Aniston fyrir tímaritið Interview . „Ég var í New York, ég var þjónustustúlka, ég var í áheyrnarprufum fyrir alla þá perverta sem til voru og báðu mig um að vera buxnalaus.“ Bullock mundi að hafa hugsað: „Nei, ekki hlutverkið fyrir mig“ en hélt áfram að reyna að „vinna sig upp“.
Segir perra hafa viljað hana buxnalausa í áheyrnarprufum