Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ætlar að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst og segir íslenskt sjálfstæði, réttindi verkafólks og yfirráð yfir auðlindum landsins órjúfanlega tengd.
Þetta kom fram í erindi sem hún flutti á fundi Áfram Ísland í Hofi á Akureyri í gær og birti í heild sinni á Facebook.
Sólveig Anna fór í erindinu yfir sögu sjálfstæðisbaráttu Íslands og verkalýðshreyfingarinnar og sagði baráttu alþýðufólks fyrir bættum kjörum og réttindum ekki aðskilda frá sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
„Besta vinnumarkaðsmódel Evrópu“
Hún sagði íslenska vinnumarkaðsmódelið standa sérstaklega sterkt í samanburði við önnur Evrópulönd, meðal annars vegna mikillar stéttarfélagsaðildar, víðtækrar kjarasamningsgerðar og sterkrar stöðu verkalýðshreyfingarinnar.
„Ég held því fram, nei, ég fullyrði, að þegar litið er til hagsmuna verkafólks eigum við besta vinnumarkaðsmódel Evrópu,“ sagði Sólveig Anna.
Að hennar mati sé mikilvægt að varðveita það fyrirkomulag og lýsti hún þeirri baráttu sem nútímalegri sjálfstæðisbaráttu.
„Hún snýst ekki um að loka landinu heldur að halda í lýðræðislegt vald samfélagsins yfir grundvallarskilyrðum vinnunnar.“
„Og þess vegna eigum við ekki að ganga í Evrópusambandið“
Undir lok ræðunnar sagði Sólveig Anna skýr tengsl milli þessarar sögu og umræðunnar um Evrópusambandið.
„Þjóð sem vill vera sjálfstæð getur ekki beðið aðra um að hugsa fyrir sig. Hún getur ekki afhent öðrum valdið yfir landinu sínu, auðlindunum, vinnumarkaðnum, framtíðinni og látið eins og sjálfstæðið sé enn óskert.“
„Og þess vegna eigum við ekki að ganga í Evrópusambandið.“
Hún sagðist ekki taka þá afstöðu vegna ótta við umheiminn eða þjóðernishyggju heldur vegna þess að réttindi vinnandi fólks og möguleikar almennings til að hafa áhrif veikist þegar vald færist lengra frá fólkinu.
„Við eigum að þora að segja nei við aðild að Evrópusambandinu.“
Sólveig Anna lauk erindinu á því að tengja sjálfstæði þjóðarinnar og réttindi verkafólks saman.
„Sjálfstæði þjóðarinnar fékkst ekki gefins. Réttindi verkafólks fengust ekki gefins. Yfirráð yfir auðlindunum fengust ekki gefin. Allt þetta kostaði baráttu.“
„Af þessum ástæðum ætla ég að segja nei 29. ágúst.“
Athugasemdakerfið ekki vinalegar frekar en fyrri daginn
Viðbrögðin við færslu Sólveigar Önnu voru misjöfn en athugasemdakerfið var ekki vinalegra en þegar hún lýsti afstöðu sinni áður.
Nokkrir lýstu yfir stuðningi við hana og sögðu ræðuna góða og innihaldsríka, en aðrir létu hana heyra það fyrir andstöðuna við ESB.
„Þessi svik verða geymd en ekki gleymd,“ skrifaði einn og annar sagði afstöðu hennar ótrúlega þar sem ekki lægi fyrir hvernig hugsanlegur aðildarsamningur myndi líta út.
„Þvílík vonbrigði Sólveig Anna,“ skrifaði einn og taldi hana hafna möguleikum á meðal annars lægra vöruverði, lægri vöxtum og meiri samkeppni.
Þá líktu tveir afstöðu hennar við Bjart í Sumarhúsum og einn skrifaði einfaldlega:
„Hættu að skipta þér af þessu, þetta kemur þér ekkert við.“