Segir Írisi Helgu enn vera að áreita sig

Segir Írisi Helgu enn vera að áreita sig

Segir Írisi Helgu enn vera að áreita sig

Maður sem segist hafa orðið fyrir áreiti af hendi Írisar Helgu Jónatansdóttur segir hana hafa valdið sér og fjölskyldu sinni miklum sálrænum skaða og að þau telji sig ekki örugg lengur. Hún sé enn að áreita þau.

Tekin var skýrsla af fyrsta brotaþola í máli Írisar Helgu við framhald aðalmeðferðar í morgun. Íris Helga er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum, sambýliskonu eins þeirra, börnum tveggja þeirra og fjölskyldum.

Maðurinn sagði að hegðun Írisar Helgu hefði valdið þeim mikilli hræðslu og kvíða.

„Við þurftum alltaf að vera á varðbergi,“ sagði maðurinn.

„Við gátum ekki upplifað eðlilega hversdagslega hluti eins og að hafa dyrnar ólæstar,“ sagði hann. Öryggistilfinning þeirra væri horfin.

Ýmislegt undarlegt í fari Írisar Helgu

Samband mannsins og Írisar Helgu hófst 2021 en því lauk í janúar 2022. Maðurinn sagði að ýmislegt undarlegt í fari hennar hefði komið fram í sambandinu.

„Hún gat ekki svarað hvort hún og barnsfaðir hennar væru enn saman,“ sagði maðurinn sem nefndi einnig að Íris Helga hefði sent honum skilaboð um að hún væri ólétt. Þá hefði hún orðið veik og þurft að leggjast inn á spítala og þurft járngjöf.

Ýmislegt hafi ekki komið heim og saman og Íris Helga hafi átt erfitt með að svara spurningum. Þá hafi maðurinn heyrt af því að Íris Helga væri að tala illa um hann við vinkonur sínar.

Setti upp öryggismyndavélar eftir atvik

Fyrsta atvikið hafi verið þegar Íris Helga kom að heimili mannsins með blómavasa sem hún hafi brotið þar fyrir utan. Íris Helga tjáði sig um blómavasann við skýrslutöku í gær og viðurkenndi þá að hafa brotið vasann. Hann hafi verið stílaður á sig og dóttur sína en Íris Helga hefur sakað manninn um að hafa misnotað dóttur sína. Maðurinn neitar því.

„Út frá þessu fer ég í Elko og kaupi öryggismyndavél og set hana upp 1. mars,“ sagði maðurinn.

2. mars 2022 hafi Íris Helga mætt heim til hans þrátt fyrir að hafa sent skilaboð á manninn um að hann ætti aldrei að tala við sig aftur.

Þegar hún kom að heimili mannsins hafi hún reynt að troða sér inn um dyrnar. Sonur hans hafi orðið vitni að atvikinu. Hún hafi í framhaldi af því sparkað í bifreið hans.

Stuttu síðar fær maðurinn tölvupóst með ástarjátningu frá Írisi Helgu og eftir það hafi áreitið byrjað.

Í framhaldi af því á Íris að hafa sent á manninn:

„Ég mun bætast í hópinn á öllum þeim konum sem hafa ásakað þig um kynferðislegt ofbeldi.“

Áreiti úr öllum áttum

Áreitið hafi byrjað á því að Íris Helga hafi sent skilaboð á vinkonur og vini mannsins. Hún hafi tjáð þeim að maðurinn væri klikkaður. Fyrst hafi hún gert það undir eigin nafni. Íris Helga hafi þá einnig varað við manninum á samfélagsmiðlum.

Þegar fólk hafi hætt að trúa henni hafi hún byrjað að búa til mismunandi aðganga til þess að halda áreitinu áfram.

Samstarfskona hans hafi látið hann vita að búið væri að skrá hann á stefnumótaforritið Tinder, sem hann telur að Íris Helga hafi gert.

Skrýtin skilaboð hafi borist með hótunum.

„Þetta var úr öllum áttum,“ segir maðurinn sem segir að erfitt hafi verið að loka fyrir það að skilaboðin bærust.

Þetta hafi fyrst byrjað í gegnum Instagram og Messenger. Margir í kringum hann hafi sagt að þetta væri í samhengi við fyrri hegðun Írisar Helgu.

Brast ítrekað í grát við skýrslutökuna

Þegar maðurinn byrjaði að búa með núverandi sambýliskonu sinni vissi hún hver Íris Helga var. Hún sjálf hefði lokað á Írisi Helgu þar sem hún hefði sent skilaboð biðjandi um upplýsingar um manninn.

Þegar hún hafi reynt að ræða við Írisi Helgu hafi hún ekki fengið svar. Þá hafi Íris byrjað að senda á son mannsins óviðeigandi skilaboð um samband þeirra.

„Ég mun ekki hætta að senda ykkur og áreita ykkur fyrr en (maðurinn) er farinn úr lífi ykkar,“ var meðal annars það sem á að hafa verið í skilaboðum Írisar.

Sambýliskona mannsins gaf einnig skýrslu í dag.

„Hún var bara að ljúga endalaust um barnsföður sinn og einhvern annan mann í Noregi,“ sagði konan. Hún hafi sagt að allir væru að berja sig. Barnsfaðir hennar hefði beitt hana heimilisofbeldi og konunni hafi þótt erfitt að vera í kringum hana þar sem Íris Helga hafi ekki getað svarað spurningum um ásakanir sínar.

Konan lýsti því að áreiti Írisar Helgu hefði haft mikil sálræn áhrif á hana og brast ítrekað í grát við skýrslutökuna.

Skilaboð send á vinnuveitendur

Maðurinn lýsti því að skemmdarverk hefðu verið unnin á bíl hans með því að rispa hann. Áreitið hafi því orðið meira og tjón hafi byrjað að verða á eignum mannsins. Sett hafi verið sýróp inn um bréfalúguna hjá sambýliskonu mannsins.

Skilaboð hafi síðar verið send á vinnuveitanda málsins. Mannauðsdeild í vinnu mannsins hafi verið látin vita af ástandinu.

Forstjóri vinnustaðarins hafi fengið tölvupóst þar sem tilkynnt var að maðurinn væri nauðgari. Skilaboð hafi einnig verið send á vinnustað sambýliskonu hans þar sem hún var sökuð um að smygla eiturlyfjum. Þau hafi reynt að vara alla nákomna við áreitinu.

Einnig hafi borist tilkynningar til barnaverndar. Maðurinn hafi fengið skilaboð frá Reykjanesbæ um að hann sjálfur hefði tilkynnt sambýliskonu sinni um lélega umhirðu á barni sínu. Kona sem hann ræddi við hjá barnavernd hafi fengið upplýsingar um áreitið og orðið mjög hissa.

Fleiri tilkynningar um ýmsar ásakanir á hendur þeim báðum hafi síðar meir borist til barnaverndar.

Þeim hafi verið tjáð að málið yrði ekki rannsakað. Kennarar og aðrir sem barnavernd hafði samband við staðfestu ekki tilkynningarnar.

Verjandi verður að fá að spyrja vitnið

Maðurinn starfaði um hríð hjá Reykjanesbæ en var sagt upp störfum þar.

Dómari hafði afskipti af verjanda Írisar Helgu, Helgu Völu Helgadóttur, þegar hún vildi fá manninn til að tjá sig um hvers vegna maðurinn var rekinn.

„Ég er að spyrja um trúverðugleika vitnisins,“ sagði Helga Vala. „Verjandi verður að fá að spyrja vitnið.“

Þá sagði Helga Vala að þegar verjendur ætluðu að spyrja vitni að einhverju þá gerðist það nánast undantekningarlaust að þeir væru stoppaðir. Maðurinn kaus að svara ekki en það sem Helga Valda reyndi að draga fram var að maðurinn hefði verið rekinn vegna áreitis í garð kvenna.

#enn #helgu #segir #vera #írisi

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-03-segir-irisi-helgu-enn-vera-ad-areita-sig-491588

📰 Aðrar fréttir

Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
📅 05.11.2026 👁️ 1
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
Tvíburasysturnar Karissa Shannon og Kristina bjuggu í tvö ár í Playboy-setrinu með stofnanda vörumerkisins, Hugh Hefner. Á þessum tíma reyndi Hefner í...
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
Karlmanni, sem skrapp á salerni á bensínstöð á Hvolfsvelli, brá í brún þegar hann kom aftur út en þá hafði ferðafélagi hans ekið burt á bílnum hans. S...
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 áru...
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
📅 05.11.2026 👁️ 1
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
Kópa­vogs­bær sækir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá K...
Forsetinn segir af sér
📅 05.11.2026 👁️ 1
Forsetinn segir af sér
Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um ...
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við frétt...
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
📅 05.11.2026 👁️ 1
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
The UK government says there are "well-established procedures for dealing with cases like this" and the risk to the public remains low.
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
📅 05.11.2026 👁️ 1
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
Judges ruled Vickrum Digwa's original term was unduly lenient and refused his bid to have it cut.
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
📅 05.11.2026 👁️ 1
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til m...
Þorgerður Katrín styður Daða Má
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þorgerður Katrín styður Daða Má
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármála...
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
📅 05.11.2026 👁️ 1
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er...
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar. Engu a...
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
📅 05.11.2026 👁️ 1
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag Stefnt er að arðr­greiðslum til eig­enda fast­eigna­fé­lags­ins sem leigir meðal ann­ars hús­næði til h...
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
Dave West fyrrum bassaleikari Wham! kemur fram á tónleikunum Celebrating George Michael sem fara fram í Hofi 20. nóvember og Hörpu kvöldið eftir 21. n...
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs á fjárhagsaðstoð á árunum 2016 til 2025 sem kynnt var í velferðarráði í gær. Hún var unnin að beiðni endur...
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, svarar Sverri Helgasyni fullum hálsi í nýrri Facebook-færslu. „Ég nenni ekki að hlusta á þenna...
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
Þrír lögmenn hafa verið fengnir til að annast undirbúning málsvarnar Íslands vegna málshöfðunar Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu vegn óful...
Stakk einn við Réttar­holts­skóla og barði annan í Mjóddinni - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Stakk einn við Réttar­holts­skóla og barði annan í Mjóddinni - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir unga manninum segir að hann hafi verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás aðfaranótt þriðjudags í septe...
Barst sprengjuhótun frá kunnug­legu net­fangi - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Barst sprengjuhótun frá kunnug­legu net­fangi - Vísir
Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir að Isavia hafi borist hótun í dag.  Hótunin hafi verið metin ótrúverðug af lögreg...
Telja hótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli ekki tengjast hótunum erlendis
📅 05.11.2026 👁️ 1
Telja hótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli ekki tengjast hótunum erlendis
Ómar Mehmet Annisius aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segir ekki talið að sprengjuhótun sem beindist gegn Keflavíkurflugvelli í dag tengist hót...
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
📅 05.11.2026 👁️ 1
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind Fram­kvæmda­stjórn ESB stefnir að því að inn­leiða vottun í gervi­greind­ar­læsi fyrir 15 ára nem­endur skóla­ár...
Hyggjast flýta frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hyggjast flýta frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti í morgun að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Daði Már Kristóferss...
Leikstjóri einnar umdeildustu kvikmyndar sögunnar látinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Leikstjóri einnar umdeildustu kvikmyndar sögunnar látinn
Hinn umdeildi ítalski leikstjóri Tinto Brass lést í gær, 4. nóvember, 93 ára að aldri. Brass var í upphafi þekktur fyrir listrænar kvikmyndir en í sei...
Metropolitan Police release Russell Brand interview footage
📅 05.11.2026 👁️ 1
Metropolitan Police release Russell Brand interview footage
Brand was found guilty of one count of rape and three sexual assaults at Southwark Crown Court.
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
Russell Brand, breski uppistandarinn og aktívistinn, hefur verið dæmdur fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Lengd dómsins verður uppkveðin á mánudag.Bresk...
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela
📅 05.11.2026 👁️ 1
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela Boy George hélt tón­leika fyrir fullu húsi í Tel Avív þrátt fyrir kröfur um menn­ing­ar­snið­göngu á Ísrael. Þegar Bo...
63 pró­sent á fram­færslu­að­stoð með er­lent ríkis­fang - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
63 pró­sent á fram­færslu­að­stoð með er­lent ríkis­fang - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs sem kynnt var í velferðarráði í gær. Úkraínskir ríkisborgarar voru fjölmennastir meðal erlendra ríkisborga...
Sprengjuhótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli barst í tölvupósti
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli barst í tölvupósti
Sprengjuhótun barst Keflavíkurflugvelli í tölvupósti í dag. Lögregla mat hana ótrúverðuga. Hótun með sama hætti barst í síðasta mánuði að sögn upplýsi...
Five arrested for forcing women into prostitution in Tenerife
📅 05.11.2026 👁️ 2
Five arrested for forcing women into prostitution in Tenerife
Five people have been arrested in Tenerife after police uncovered an alleged network forcing women into prostitution to repay imposed debts of up to €...
Söguleg úrslit en varla kúvending strax
📅 05.11.2026 👁️ 1
Söguleg úrslit en varla kúvending strax
Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum 3. nóvember. Það er algengt að flokkur sitjandi forset...
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun
Breski grínistinn Russell Brand var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi fyrir dómi í dag. Réttarhöld yfir honum hafa staðið síðan 12. október...
Hafi neytt konu til munnmaka í bíl - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hafi neytt konu til munnmaka í bíl - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var fyrir luktum dyrum í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, segir að maðurinn hafi að kvöldi fimmtudags í júlí ár...
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
📅 05.11.2026 👁️ 2
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
Det Supt Andy Furphy said he hoped other potential victims would gain "courage" and "confidence" from the guilty verdicts.
Russell Brand is being investigated over two new rape complaints, police say

Bókargagnrýni: Tvær hliðar á merkum manni
📅 05.11.2026 👁️ 3
Bókargagnrýni: Tvær hliðar á merkum manni
Davíðstíminn – Sjálfstæð saga leiðtoga og landsJón Trausti Reynisson – Reynir TraustasonÚtgefandi er Góður punktur
Russell Brand dæmdur sekur um nauðgun
📅 05.11.2026 👁️ 3
Russell Brand dæmdur sekur um nauðgun
Russell Brand, breski uppistandarinn og aktívistinn, hefur verið dæmdur fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Lengd dómsins verður uppkveðin á mánudag.Bresk...
'Flawed' Army training contributed to Max George's death, coroner rules
📅 05.11.2026 👁️ 1
'Flawed' Army training contributed to Max George's death, coroner rules
A coroner rules Second Lt Max George's death on Salisbury Plain was an accident.
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar
📅 05.11.2026 👁️ 3
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar Fréttin5. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Öry...
Kannaðist ekki við spíttið og sagðist hafa verið í ísbíltúr - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Kannaðist ekki við spíttið og sagðist hafa verið í ísbíltúr - Vísir
Í úrskurði Landsréttar um gæsluvarðhaldskröfu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að móttakandi sendingarinnar hafi verið ótilgreint gjaldþrot...
Lögreglan ennþá á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
📅 05.11.2026 👁️ 2
Lögreglan ennþá á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
Framkvæmdir eru ekki hafnar í lögreglustöðinni á Ísafirði þar sem mygla fannst fyrir hálfu öðru ári. Lögreglumönnum á Vestfjörðum finnst óboðlegt að v...
Lögreglan enn á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði

The Russell Brand I saw in court was not the flamboyant character most people will know
📅 05.11.2026 👁️ 1
The Russell Brand I saw in court was not the flamboyant character most people will know
Brand stood upright in the dock as the verdicts were read out in court - ending this sometimes surreal trial.
Borgin hafi rekið fólkið á bak við græna bók­haldið - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Borgin hafi rekið fólkið á bak við græna bók­haldið - Vísir
Þetta kemur fram í bókun Lífar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær, þar sem kolefnisspor Reykjavíkur fyrir árið 2025 var kynnt. „Nú hefur meirih...
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti
📅 05.11.2026 👁️ 3
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti Fréttin5. nóvember 2026Innlent, Skólamál, TransmálLeave a Comment Hel...
Vill sekta fyrirtæki sem auglýsa ekki á íslensku
📅 05.11.2026 👁️ 3
Vill sekta fyrirtæki sem auglýsa ekki á íslensku
Auglýsingar á Íslandi eiga að vera á íslensku, segir Snorri Másson þingmaður Miðflokksins. Hann mælti fyrir nýju frumvarpi á Alþingi fyrir nokkru um b...
Cristiano Ronaldo: Why has Portugal legend retired from international game?
📅 05.11.2026 👁️ 3
Cristiano Ronaldo: Why has Portugal legend retired from international game?
As Cristiano Ronaldo retires from international football, Guillem Balague looks at why and what is next for the Portugal legend.
Cristiano Ronaldo retirement: Why has Portugal legend retired from international game?

How rapist Russell Brand was never far from controversy
📅 05.11.2026 👁️ 1
How rapist Russell Brand was never far from controversy
BBC correspondent Sima Kotecha explains how the trial unfolded.
Russell Brand dæmdur fyrir nauðgun - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Russell Brand dæmdur fyrir nauðgun - Vísir
BBC greinir frá sakfellingunni en koma mun í ljós hver refsing Brand verður á mánudag. Brand, sem er 51 árs, var ákærður fyrir þrjár nauðganir, þrjú k...
Tenerife remains a mass-market resort where nightlife and casinos serve as pleasant additions
📅 05.11.2026 👁️ 3
Tenerife remains a mass-market resort where nightlife and casinos serve as pleasant additions
The largest of the Canary Islands welcomes millions of tourists each year, drawn by its extensive sandy beaches, volcanic landscapes, and mild climate...