Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Íran ekki eiga möguleika gagnvart Bandaríkjunum þegar hann ávarpaði fjölmiðla á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í dag.
Hann sagði mikilvægt að Írönum yrði ekki leyft að eiga kjarnorkuvopn og lagði áherslu á að Bandaríkin hefðu útrýmt land-, sjó- og flugher Írans ásamt leiðtogum landsins – nokkuð sem forsetinn hefur ítrekað sagt á undanförnum vikum.
Forsetinn fullyrti að Bandaríkin ynnu að gerð „frábærra samninga“ við Suður-Kóreu og Japan um opnun Hormússunds. Hann endurtók jafnframt að Íranar vildu gera samning við Bandaríkin.
„Þeir spila leiki, en leyfið mér að segja ykkur, þeir vilja gera samning,“ sagði Trump.
Varnarmálaráðherra segir aðgerðum ekki lokið
Fyrr í dag sagði Pete Hegeseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að aðgerðir til að verja sjóflutninga um Hormússund væru tímabundnar og að fjögurra vikna vopnahléi væri ekki lokið.
Á blaðamannafundi sagði Hegseth meðal annars að ef Íranar gerðu árásir á flutningaskip yrði þeim svarað af hörku og að önnur ríki heims þyrftu meira á siglingaleiðinni að halda en Bandaríkin.
„Eins og ég hef áður sagt þarf heimurinn miklu frekar á sundinu að halda en við. Við erum að ná fram stöðugleika til þess að varningur geti flætt á milli á ný en við væntum þess að restin af heiminu taki við sér þegar tíminn er réttur og fljótlega munum við láta ábyrgðina aftur í þeirra hendur,“ sagði varnarmálaráðherrann.
Hafa stöðvað fimmtán eldflaugar og fjóra dróna
Í gær hóf Íran árásir á Sameinuðu arabísku furstadæmin samkvæmt upplýsingum frá varnarmálaráðuneyti landsins. Þar segir að loftvarnakerfi landsins vinni við að stöðva loftárásir frá Íran.
Hingað til hafi þurft að stöðva fimmtán íranskar eldflaugar og fjóra dróna. Neyðarstjórn landsins hefur varað borgara við árásunum og hvatt þá til að halda sig á öruggum stað.
Ekkert lát er á átökum milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna í suðurhluta Líbanon. Þar hefur mikill fjöldi fólks þurft að yfirgefa heimili sín og ekki liggur fyrir hvenær því verður óhætt að snúa aftur.
Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum ríkir mikil reiði meðal íbúa Líbanons þar sem þorp, bæir og heimili hafa verið lögð í rúst í loftárásum Ísraela.