Kona fædd árið 1974 hefur verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamárás sem framin var aðfaranótt laugardagsins 7. september árið 2024, á veitingastaðnum Ránni í Reykjanesbæ.
Ákærða er sökuð um að hafa kastað glerglasi í andlit konu, sem fædd er árið 1998, og hlaut brotaþoli skurð við neðri vör og brot á tveimur tönnum í efri góm.
Brotaþoli krefst bóta af hendi ákærðu, 1.674.600 króna.
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 25. júní næstkomandi.