Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að nú sé góður tími fyrir Ísland til að ganga í Evrópusambandið, ekki síst vegna breyttrar stöðu heimsmála. Hún telur að innganga myndi ekki síður gagnast Evrópusambandinu en Íslandi.
Þetta segir Kristrún í viðtali við Alistair Campbell og Rory Stewart í hlaðvarpinu Rest Is Politics, þegar hún er spurð að því hvers vegna atvinnulífið virðist vera mótfallið frekari aðildarviðræðum við ESB.
Er óreiða Trumps að ýta Íslandi í átt að Evrópusambandinu? er yfirskrift hlaðvarpsviðtalsins þar sem Kristrún ræðir ítarlega um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Norðurslóðir í auknum fókus
„Þau eru að horfa skipulega í kringum sig. Þau vita að heimurinn er að breytast. Norðurslóðir eru í brennidepli núna og ég held að mörg Evrópulönd og líka embættismannakerfið í Brussel viti að þau þurfa á auknum sveigjanleika fyrir Evrópu til að halda sér í takti við tímann. Þar kemur Ísland inn,“ segir Kristrún.
„Ég held að við höfum góða sögu að segja og séum góð viðbót við það verkefni en á sama tíma gefur það okkur betri stöðu í aðildarviðræðum, hugsa ég. Þetta er eitthvað sem ég tel að Evrópusambandið þurfi að heyra og sömuleiðis önnur Evrópulönd. Íslenskur almenningur þarf líka að heyra þetta,“ segir Kristrún.
Ásælni Trumps í Grænland „áhyggjuefni“
Kristrún var spurð að því hvort hún hefði áhyggjur af ásælni Donalds Trump í Grænland sem hann hefur ítrekað viðrað á síðustu misserum, ekki síst vegna þess að hann hefur átt það til að ruglast á Grænlandi og Íslandi.
„Augljóslega hefur fólk áhyggjur af þessu Grænlandsmáli,“ segir Kristrún. „Það að þjóðarleiðtogar í hinum frjálsa heimi skuli tala svona er vandamál, stórt vandamál, og ég veit að Íslendingar hafa miklar áhyggjur af þessu,“ segir Kristrún.
„Við erum ekki með her en við erum NATO-þjóð. Við gengum í NATO með Bandaríkjunum og búum að tvíhliða varnarsamningi við landið. “
Það að þjóðarleiðtogar í hinum frjálsa heimi skuli tala svona er vandamál, stórt vandamál.
Hún bætir því við að samband Íslands við stórveldi heimsins sé sérstakt, ekki síst vegna þess að Ísland hefur aldrei átt í blóðugu stríði við aðrar þjóðir. „Þannig að það eru ólíkar tilfinningar sem bærast um í brjósti fólks í garð svona landamæradeilna, ef við getum kallað það það. En þetta er áhyggjuefni.“