Stjórnvöld í Íran lýstu í dag yfir kröfum um að frystingu á eignum þeirra yrði aflétt og eins hafnbanni Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur alfarið hafnað skilyrðum Írana fyrir samningaviðræðum.
Trump hefur ekki sagt hvað það var í tillögum Írana sem hann hafi ekki getað gengið að. Utanríkisráðuneyti Írans segist hafa krafist þess að Bandaríkin myndu fella niður hafnbann og hætta stríðsátökum í heimshlutanum og að í því felist einnig að Ísraelar hætti árásum á Líbanon. Þá krefjast Íranar þess að fá til baka eignir sínar sem hafa verið frystar í erlendum bönkum.
Staðan hefur orðið til þess að olíuverð hefur hækkað enn frekar, enda litlar horfur á að opnað verði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á næstunni. AFP fréttaveitan hefur eftir framkvæmdastjóra sádi-arabíska olíufyrirtækisins Aramco, Amin Nasser, að þó að Hormússund yrði opnað í dag myndi taka nokkra mánuði fyrir markaðinn að ná jafnvægi á ný.
Á friðartímum er um fimmtungur allrar olíu heimsins fluttur um Hormússund. Áburður er einnig fluttur um sundið og því gæti hungur vofað yfir milljónum manna takist ekki samningar um opnun þess.
Leggja til að úran verði geymt í þriðja ríki
Bandaríkjamenn og Ísraelar saka Írani um að vera að þróa kjarnavopn. Þeim ásökunum hafa þeir neitað. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði í viðtali við fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur að fjarlægja þyrfti auðgað úran frá Íran.
The Wall Street Journal hefur eftir heimildarmanni sínum að Íranir hafi lagt til að hluti af úraninu yrði þynntur og að það sem eftir stæði yrði sent úr landi, þó ekki til Ísraels eða Bandaríkjanna, og geymt þar. Íranar vilja tryggingar fyrir því að fá úranið til baka takist ekki samningar.
Líbanir að Bandaríkjamenn þrýsti á Ísraela
Ráðamenn í Líbanon hafa hvatt sendiherra Bandaríkjanna í landinu til að þrýsta á Ísraela að hætta árásum. Stjórnvöld í Líbanon lýstu yfir í dag að Ísraelsher hefði drepið 2.869 manns síðan 2. mars, þar á meðal er fólk sem herinn hefur drepið eftir að samið var um vopnahlé 17. apríl.
Ísraelsher skipaði í dag íbúum níu bæja í Líbanon að leggja á flótta. Líbanon dróst inn í þetta stríð í byrjun mars þegar Hezbollah gerði árásir á Ísrael eftir að herir Ísraels og Bandaríkjanna hófu árásir á Íran og réðu æðstaklerk landsins af dögum.
Heilbrigðisyfirvöld í Líbanon segja að síðasta sólarhringinn hafi Ísraelar drepið 51, þar á meðal tvo heilbrigðisstarfsmenn.