Samlíking við þýska kyndingu vekur furðu já-sinna
Formaður Sjálfstæðisflokksins útskýrði ólíka hagsmuni Íslendinga og ESB með dæmi um þýska kyndingu. Samlíkingin hefur vakið nokkra furðu já-sinna.
Fjölmargar færslur má finna á Facebook-hópi þeirra sem segja já við ESB-viðræðum þar sem vakin er athygli á samlíkingu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, við þýska kyndingu og yfirstjórn Evrópska seðlabankans þegar kemur að stjórn evrunnar.
Viðtalið sem um ræðir var á Útvarpi Sögu á föstudaginn og þar var Guðrún að svara vangaveltum Arnþrúðar Karlsdóttur um hvernig peningaleg yfirstjórn færi með íslenskt hagkerfi sem Guðrún hélt því fram að væri bæði sérstakt og einstakt að því leyti að Ísland treystir að mestu á náttúruauðlindir sínar.
Ekki hægt að miða við hitastigið í Frankfurt
Guðrún gerði svo tilraun til þess að útskýra sjónarmið sín:
„Til þess að einfalda þetta mjög, þessa útskýringu mína, þá langar mig að reyna að útskýra þetta eins og ég hef gert fyrir börnin mín. Nú bjó ég í Þýskalandi um árabil. Sumarið í Þýskalandi er langt og Þjóðverjar eru sparsamir. Í byrjun apríl slökkva Þjóðverjar á miðstöðinni. …