Fyrirtækið Heilsuvernd hefur samið um rekstur á nýju hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Fyrirtækið rekur fyrir bæði hjúkrunarheimilin í bænum.
Áætlað er að þriðja hjúkrunarheimili Heilsuverndar rísi í Þursaholti, norðan við smábátahöfnina á Akureyri. Reitir vann útboð um bygginguna, sem verður níu þúsund og eitt hundruð fermetrar með rými fyrir 140 íbúa.
Seinna útboðið snerist svo um rekstur heimilisins, þar varð Heilsuvernd ofan á en þau reka fyrir Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri.
Mikil þörf fyrir fleiri rými og bættan aðbúnað
„Nú fer bara í hönd samstarf milli aðila sem á að ganga tiltölulega hratt fyrir sig. Við höfum beðið lengi eftir því að geta endurbætt aðstöðu á Akureyri sem hefur legið lengi fyrir að er ekki alveg nægjanlega góð og þetta mun breyta því verulega“, segir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar.
Þarna vísar Teitur til langvarandi húsnæðisvanda vegna myglu, rakaskemmda og annarra vandkvæða sem upp komu á Hlíð fyrir um fjórum árum. Þar eru um 25 rými ónothæf í dag vegna viðgerða. Framkvæmdirnar standa væntanlega fram á næsta ár og á meðan má vænta þess að hluti hússins verði óíbúðarhæfur. Þetta varð til þess að bið eftir hjúkrunarrými á Norðurlandi lengdist verulega.
Framkvæmdirnar í Þursaholti eru á vegum byggingaraðilans og ríkið leigir svo af þeim næstu 25 ár. Teitur segist vona að framkvæmdir hefjist bráðlega á lóðinni. Miðað við áætlun ríkisstjórnar um uppbyggingu hjúkrunarheimila, eru áætluð verklok 2028.
„Þetta ætti að geta gerst á næstu mánuðum, að við verðum búin að hanna og hefja framkvæmdir, vona ég.“