Í tilkynningu frá yfirkjörstjórn segir að A-listi Samhentrar sveitar hafi hlotið 336 atkvæði en Í-listi Íbúahreyfingarinnar 150 atkvæði.
„Á kjörskrá voru 657 og atkvæði greiddu alls 507, sem er 77,2% kjörsókn.
Auðir seðlar voru 17 og ógildir seðlar voru 4.
Kjörnir sveitarstjórnarmenn í Hvalfjarðarsveit 2026-2030 skv. framangreindu eru:
Af A lista:
- Haraldur Benediktsson
- Guðrún Sigríður Gísladóttir
- Guðbjartur Þór Stefánsson
- Einar Þórarinsson
- Brynhildur Stefánsdóttir
Af Í-lista:
- Þóra Margrét Júlíusdóttir
- Baldur Þór Ketilsson,“ segir í tilkynningunni.