Franskir saksóknarar hafa krafist réttarhalda yfir fjöldamorðingjanum Francis Heaulme vegna áður óupplýsts morðs sem framið var 1989. Morðinginn hefur setið í fangelsi síðan 1992.
Heaulme er 67 ára og var sakfelldur fyrir ellefu morð. Sakamáladómstóll vísaði árið 1989 frá morðmáli á hendur honum þar sem hann var ákærður fyrir að hafa myrt bóndann Jean-Joseph Clement með ítrekuðum höfuðhöggum með grjóti.
Deild innan lögreglu sem rannsakar óupplýst mál þykir allt benda til sektar Heaulme og saksóknarar segja sönnunargögn geta tryggt sakfellingu núna. Lögmaður dóttur Clement segir þetta mikilvægt skref fyrir hana sem hefur um árabil reynt að sanna sekt Heaulmes og draga hann fyrir dóm.
Heaulme alræmdastur fyrir að myrða tvö börn
Lögmaðurinn kvaðst jafnframt vona að Heaulme hefði heilsu til að koma fyrir rétt. Hann liggur á sjúkrahúsi en ekki er vitað hvað amar að honum. Hann framdi glæpi sína á árabilinu 1984 til 1992 og fékk viðurnefnið „bakpokamorðinginn“ í umfjöllun fjölmiðla.
Heaulme er illræmdastur fyrir að myrða tvö börn með höfuðhöggum árið 1986 og skilja lík þeirra eftir við járnbrautarteina. Hann var ekki dæmdur til lífstíðarfangavistar fyrr en 2020 eftir að seinustu tilraun hans til áfrýjunar var hafnað.
Heulme afplánar dóminn í fangelsi norðanvert í Frakklandi sem meðal annars hýsir Dominique Pelicotsem sakfelldur var fyrir að byrla konu sinni ólyfjan og leyfa ókunnum karlmönnum að nauðga henni.