Staðan í meirihlutamyndun í Hafnarfirði er orðin þröng, segja oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðismenn slitu viðræðum við Framsókn eftir að þeir urðu þess áskynja að Framsóknarmenn hefðu líka verið í viðræðum við Samfylkinguna. Bæði segja ekki hægt að vinna með Framsókn.
„Það varð bara trúnaðarbrestur,“ sagði Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í hádegisfréttum. „Þegar slíkt rof verður þá er ansi erfitt að halda áfram. Við tókum þá ákvörðun að slíta þessum viðræðum.“
Orri sagði að mynda þyrfti meirihluta í bænum fyrir fyrsta bæjarstjórnarfund 3. júní. Hann sagði Sjálfstæðismenn ekki komna á þann stað að vita hvernig sá meirihluti verður.
Aðspurður hvort meirihlutasamstarf við Samfylkinguna og Viðreisn kæmi til greina svaraði Orri:
„Það eru ekki margir kostir í stöðunni, eins og fólk sér. Við erum ekki búnir að semja við einn eða neinn. Við vorum að slíta þessu réttu núna og verðum að sjá hvað gerist á næstu dögum.“
Hann telur stöðuna þrönga þegar Framsóknarflokkurinn er úr myndinni hvað Sjálfstæðisflokkinn varðar.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tók við sem nýr oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði eftir að Guðmundur Árni Stefánsson hætti.
Hún sagði í hádegisfréttum að Samfylkingin hefði verið búin að ræða við Framsóknarflokkinn eftir kosningar og þær umræður gengið langt. Hún sagðist ekki hafa rætt við Framsóknarmenn nýlega, eftir að í ljós kom að þeir ræddu við tvo flokka í einu.
„Eins og er þá hugnast okkur ekki samstarf við Framsóknarflokkinn vegna, já, bara svika. Það voru brögð í tafli. Framsókn var þarna með tvo skildi á lofti. Við fréttum það eftir á, það þarf að vera traust og heiðarleiki í samskiptum svo hægt sé að vinna saman.“
Samfylkingin útilokar ekkert, sagði Hildur Rós. Hún sagði engar þreifingar hafa verið um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn en að Samfylkingin væri ábyrgt stjórnmálaafl og tilbúin að stíga upp ef þess væri óskað.
Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar og bæjarstjóri í Hafnarfirði, gaf ekki kost á viðtali fyrir fréttir.