Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga - Vísir

Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga - Vísir

Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga - Vísir

Ef stiklað er á stóru segir umrædd saga frá ungu pari með Downs-heilkenni sem hafði fengið að dvelja í bústað yfir eina nótt. Um nóttina hafi parið hringt á lögregluna og tilkynnt að þau hafi handsamað tvö tröll. Þegar lögreglu bar að garði reyndust tröllin tvö vera dvergvaxnir erlendir ferðamenn.

Sagan hefur gengið í endurnýjun lífdaga hér á landi undanfarnar vikur og gengið manna á milli sem „sönn saga“. Í meðförum sögumanna á atvikið að hafa gerst nýlega í sumarbústað á Suðurlandi.  Í útgáfum sem hafa heyrst af sögunni eru ferðamennirnir ýmist þýskir, franskir eða hollenskir. Þá á sumarbústaðareigandi að hafa leigt parinu bústaðinn við Þingvelli yfir eina nótt. Sagan endar gjarnan á því að lögreglan er kölluð til og finnur ferðamennina lokaða inni í svefnherbergi eða í skáp.

Sagan rekin til bókar og til flökkusögu í Danmörku

Fréttastofa hefur rakið uppruna flökkusögunnar til bókarinnar Haugalygi sem kom út fyrir jól árið 2023. Sigtryggur Baldursson, trommari og söngvari, gjarnan kenndur við Bogomil Font og Milljónamæringana, er höfundur bókarinnar.

Sigtryggur Baldursson gaf út bókina Haugalygi árið 2023.vísir/vilhelm

Hann segir í samtali við fréttastofu að sagan hafi ratað til sín sem „sönn saga“ fyrir ekki svo löngu á Jazzhátíð Reykjavíkur sem fór fram í lok ágúst. Hann hafi kíminn tilkynnt þeim sem sagði honum frá þessari ótrúlegu atburðarás að hana mætti finna í ritverki sínu.

Aðspurður segist Sigtryggur hafa heyrt söguna fyrst árið 2019 þegar hann var staddur í Hong Kong. Einar Örn Benediktsson, söngvari og trompetleikari úr Sykurmolunum og Purrki Pilnikk, sagði Sigtryggi söguna en hann hafði heyrt hana frá Íslendingi sem hefur búið í Danmörku til lengri tíma. 

Einar Örn Benediktsson, þegar hann var borgarfulltrúi Besta flokksins.vísir

Sá Íslendingur vildi ekki koma fram undir nafni en sagði í samtali við fréttastofu að vissulega væri um haugalygi að ræða. Hann hafði heyrt söguna frá viðskiptavini í Kaupmannahöfn sem sagði að vinur vinar síns hefði lent í umræddu atviki. Síðar hafi komið í ljós að um dæmigerða ósanna flökkusögu hafi verið að ræða. 

Einn risastór hvísluleikur

Elsta dæmið um umrædda sögu má finna á dönskum spjallþræði frá árinu 2009 þar sem maður á að hafa fangað tröll sem reyndist lágvaxin manneskja. Það atvik átti að hafa gerst í Varde en önnur útgáfa af sögunni á sér stað í Árósum. 

Fréttastofa fann hvorki heimildir um að eitthvað í líkingu við þetta hafi átt sér stað á Íslandi né Danmörku og því að öllum líkindum um fiskisögu að ræða.

Sigtryggur segir að sú útgáfa sem hann heyrði hafi gerst í Danmörku og að sagan sem hann skrifaði í Haugalygi gerist einnig í Danmörku. Hann hafi ekki hugmynd um hvernig það gerðist að sagan hafi nú farið í svo mikla dreifingu og af hverju hún er allt í einu staðfærð á Íslandi. Ferðamennirnir séu franskir í bókinni. Um risastóran hvísluleik sé að ræða.

„Eins og ég skrifa hana þá tek ég söguna og staðset hana í Danmörku og hún gerist hjá þessari dönsku fjölskyldu. Móðirin er að fara niður á strönd og leyfir börnunum að vera eina nótt í bústaðnum. Þau voru í kringum tvítugt og með Downs-heilkenni. Sagan er alltaf með sömu uppbyggingu þegar hún er sögð. Þannig verða flökkusögurnar til og fólk segir þær með eigin nefi.“

Mörg rauð ljós í sögunni

Hann segir það smá spennandi við söguna hve mikið hún sé á grensunni þegar komi að pólitískum rétttrúnaði.

„Sagan er alveg frábær. Það sem Einari fannst svo fyndið er að það eru svo mörg rauð ljós í henni. Það eru börn með Downs-heilkenni, það er dvergvaxið fólk. Það er ekkert verið að gera lítið úr neinum í sögunni, þetta er bara fáránleg tilviljun.“

Hann tekur fram að hugmyndin á bak við bókina Haugalygi hafi verið að rita niður sögur sem séu ekki beint sannar en ekki endilega alveg ósannar. Hann ítrekar að aldrei skuli eyðileggja góða sögu með sannleikanum.

„Ég nota fleiri sögur í þessari bók sem koma frá öðru fólki. Þetta eru kannski fjórar sögur sem koma utan frá og restin af þeim er meira eða minna úr minni fjölskyldu. Það er nefnilega hugmyndin og ég segi það í byrjun bókarinnar að minnið er svo lævíst og lipurt. Ég segi nokkrar sögur sem komu fyrir mig í Sykurmolunum eða í Kuklinu. Ég talaði til dæmis við hljómsveitarfélaga mína og þau mundu iðulega sögurnar öðruvísi en ég.“

Sprakk úr hlátri þegar vinur reyndi að segja honum söguna

Hann kveðst hafa farið í hláturskast þegar ónefndur aðili ætlaði að segja honum ótrúlega en sanna sögu.

„Það var einhver sem ætlaði að segja mér hana um daginn og ég bara sprakk úr hlátri og sagði; Fyndið að þú skulir segja þetta en þessi saga er í annarri útgáfu í bók sem ég gaf út árið 2023. En eins og maður segir, sannleikurinn má aldrei koma í veg fyrir góðar sögur.“

Hann segir um skemmtilegan leik að orðum að ræða þar sem tröllsaga verður að trollsögu sem leikur á netverja og fólk um hvippinn og hvappinn.

„Þetta eru í rauninni svona troll, því norsku tröllin eru lítil með stór nef og þetta átti að hafa verið í uppáhaldi hjá þessu unga pari, einhverjar trollsögur. Það er verið að trolla fólk allan hringinn með þessari sögu enda heitir sagan troll í bókinni.“

Sigtryggur er nú með aðra bók í smíðum. Haugalygi hafi alltaf átt að vera hluti af dúett, þ.e. Haugalygi og Dagsatt

#downs #dverga #með #par #saga


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933023d/saga-um-par-med-downs-og-dverga-reyndist-trollasaga

📰 Aðrar fréttir

FRIDAY WEATHER: Cloudier skies, some showers and 28°C in the Canary Islands
📅 11.09.2026 👁️ 0
FRIDAY WEATHER: Cloudier skies, some showers and 28°C in the Canary Islands
Residents and holidaymakers across the Canary Islands can expect a noticeably different feel to the weather today, Friday 11th September, as cloudier ...
25 ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar
📅 11.09.2026 👁️ 0
25 ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar
Í dag eru 25 ár frá hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum, 11. september 2001. Árásirnar og eftirmálar þeirra mörkuðu djúp sár í þjóðarsál Bandaríkjaman...
Hvað gerðist í kosningabaráttunni?
📅 11.09.2026 👁️ 0
Hvað gerðist í kosningabaráttunni?
Hvað gerðist í kosningabaráttunni? Vill­andi mál­flutn­ing­ur, óvæg­in um­ræða og lé­leg­ir fjöl­miðl­ar eru á með­al þess sem sit­ur í tals­fólki og ...
Angela Rayner defends pause to local council overhaul in England
📅 11.09.2026 👁️ 1
Angela Rayner defends pause to local council overhaul in England
The cabinet minister tells the BBC she wanted to ensure the plans could survive potential legal actions.
Óskar eftir því að verða færð úr fangelsi í stofufangelsi
📅 11.09.2026 👁️ 1
Óskar eftir því að verða færð úr fangelsi í stofufangelsi
Fyrrum forsetafrú Venesúela, Cilia Flores, hefur óskað eftir því að vera færð úr fangelsi í stofufangelsi vegna slæmrar heilsu.Flores og eiginmaður he...
Princess Dianna's 'revenge dress' goes up for auction
📅 11.09.2026 👁️ 0
Princess Dianna's 'revenge dress' goes up for auction
Auction house Sotheby's expects the dress to sell for up to $300,000 (£220,000) when it goes under the hammer on 9 December.
Hong Kong's Tiananmen activists sentenced to up to seven years in prison
📅 11.09.2026 👁️ 1
Hong Kong's Tiananmen activists sentenced to up to seven years in prison
Hong Kong used to be one of the only places in Chinese territory where people could gather to mark the 1989 crackdown.
Anthropic blocks 'malicious use' of AI that could develop biological weapons
📅 11.09.2026 👁️ 2
Anthropic blocks 'malicious use' of AI that could develop biological weapons
The revelations in Anthropic's threat intelligence report come after a former top researcher at the company warned of the risks of AI to humanity.
Lögfræðingur Musk hótar málaferlum vegna heimildamyndar
📅 11.09.2026 👁️ 2
Lögfræðingur Musk hótar málaferlum vegna heimildamyndar
Lögfræðingur Elon Musk hefur hótað málaferlum gegn framleiðendum heimildamyndarinnar Musk vegna ærumeiðinga.Lögfræðingurinn Alex Spiro segir í bréfi s...
MPs to vote on legalising assisted dying in England and Wales
📅 11.09.2026 👁️ 1
MPs to vote on legalising assisted dying in England and Wales
The proposal was backed by a majority of MPs earlier this year but did not become law after its progress was stalled by peers.
Is Trump's $5,000 pledge a sign of panic?
📅 11.09.2026 👁️ 2
Is Trump's $5,000 pledge a sign of panic?
Even by Trump's own unconventional standards, his promise to voters was bizarre, writes North America editor Sarah Smith.
Rússar gerðu árás á verslanamiðstöð
📅 11.09.2026 👁️ 1
Rússar gerðu árás á verslanamiðstöð
Fimm voru drepnir og að minnsta kosti 67 særðust í árás Rússa á verslanamiðstöð í Pavlohrad í Dnipropetrovsk-héraði í Úkraínu í gær. Meðal hinna særðu...
Rússar gripnir með leynilegar sæstrengjaklippur
📅 11.09.2026 👁️ 2
Rússar gripnir með leynilegar sæstrengjaklippur
Rússar voru gripnir við æfingar á notkun leynivopns sem hannað er til þess að klippa á sæstrengi. Æfingarnar stóðu yfir nærri Svalbarða í vor.Það voru...
Halda minningarstund fyrir Hönnuh - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 2
Halda minningarstund fyrir Hönnuh - Vísir
Hannah lést ásamt tveimur íslenskum ungmennum, Arndísi Höllu Guðlaugsdóttur og Benjamín Guðmundssyni, í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi hinn 31. ágúst....
Ukraine's fortress cities under fire as Russia bids to seize rest of Donbas
📅 10.09.2026 👁️ 3
Ukraine's fortress cities under fire as Russia bids to seize rest of Donbas
Kramatorsk and Slovyansk are now the main focus of Russian ground assaults, and residents are being told to leave.
9/11 anniversary: How the lessons of the attacks are still being learnt
📅 10.09.2026 👁️ 3
9/11 anniversary: How the lessons of the attacks are still being learnt
The attacks came to define a generation of foreign, security and intelligence policy in the first decades of this century, the BBC’s security correspo...
Rússar gómaðir með leyni­lega sæstrengjaklippu - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Rússar gómaðir með leyni­lega sæstrengjaklippu - Vísir
Æfingin var á vegum GUGI, leynilegrar deildar rússneska sjóhersins sem vinnur sérstaklega að neðansjávarhernaði á miklu dýpi. Ráðamenn í Bretlandi og ...
Fjár­laga­frum­varpið „köld kveðja til launa­fólks“ - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Fjár­laga­frum­varpið „köld kveðja til launa­fólks“ - Vísir
Í ályktun lýsir stjórn VR þungum áhyggjum af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir 2027 og segir það að óbreyttu draga úr líkum á að kjarasamning...
Bernie Sanders speaks to the BBC about proposed bill to ban AI superintelligence
📅 10.09.2026 👁️ 2
Bernie Sanders speaks to the BBC about proposed bill to ban AI superintelligence
The senator has also proposed a sort of sovereign wealth fund in which the US would take a 50% stake in AI companies.
Þúsundir prjóna til að rjúfa mynstrið
📅 10.09.2026 👁️ 2
Þúsundir prjóna til að rjúfa mynstrið
Ef þú hefur farið eitthvað út fyrir hússins dyr í sumar eru ágætar líkur á að þú hafir séð einhvern í Skjól-peysu. En hvað er eiginlega málið með þett...
Kanna hvort Kim eigi son - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Kanna hvort Kim eigi son - Vísir
Leyniþjónustan hefur áður sagt að Kim sé talinn eiga þrjú börn með Ri Sol Ju, eiginkonu sinni, en fyrir utan Kim Ju Ae, dóttur þeirra, er lítið vitað ...
Hver fer í fótspor Trumps?
📅 10.09.2026 👁️ 0
Hver fer í fótspor Trumps?
Hver fer í fótspor Trumps? Re­públi­kan­ar horfa til eft­ir­manna Trumps sem geti tek­ið MAGA-stefn­una áfram. Repúblikanar komu saman í Dallas í þess...
Rick Springfield viðurkennir að hafa drepið mann – „Vissi ekkert hvað ég var að gera“
📅 10.09.2026 👁️ 3
Rick Springfield viðurkennir að hafa drepið mann – „Vissi ekkert hvað ég var að gera“
Ástralska rokkstjarnan Rick Springfield viðurkennir að hafa orðið manni að bana fyrir áratugum síðan. Springfield var þá ungur maður að skemmta bandar...
Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 2
Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin - Vísir
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær manninn til níu mánaða fangelsisvistar, þar af sex mánuði skilorðsbundna til tveggja ára, fyrir gróf og endurtekin...
„Ég mun stúta þér og ein­hver skilar sér ekki í skólann“ - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
„Ég mun stúta þér og ein­hver skilar sér ekki í skólann“ - Vísir
Í gær dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur manninn til níu mánaða fangelsisvistar, þar af sex mánuði skilorðsbundna til tveggja ára, fyrir gróf og endurtekin...
Sleggjunni slengt á Kristrúnu
📅 10.09.2026 👁️ 3
Sleggjunni slengt á Kristrúnu
„Þetta er lykilatriði núna og ábyrg stjórnvöld gera þetta, ég átta mig alveg á því að þetta er ekkert ofboðslega vinsælt en þessi ríkisstjórn er bara ...
Hanna Katrín átti fund með sendi­herra Kína - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Hanna Katrín átti fund með sendi­herra Kína - Vísir
Sendiráðið greindi frá þessu í Facebook-færslu en þar segir að Ísland njóti mikilla vinsælda í Kína enda hafi tíu milljónir Kínverja birt færslu sem e...
Hélt fyrrum sambýliskonu í heljargreipum – Undarlegt myndband af bölvunarathöfn
📅 10.09.2026 👁️ 3
Hélt fyrrum sambýliskonu í heljargreipum – Undarlegt myndband af bölvunarathöfn
Karlmaður hefur verið dæmdur til 9 mánaða fangelsis, að hluta skilorðsbundið, vegna brota í nánu sambandi gagnvart fyrrum sambýliskonu. Á meðal þess s...
Skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum
📅 10.09.2026 👁️ 3
Skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum
Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum og að hækka ekki gjöld um meira en tvö og hálft prós...
Árásir Ísraelshers mældust á jarðskjálftamælum í Líbanon
📅 10.09.2026 👁️ 4
Árásir Ísraelshers mældust á jarðskjálftamælum í Líbanon
Árásir Ísraelshers í Líbanon mældust á jarðskjálftamælum en samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni mældist skjálfti af stærðinni 4,1 í Líbanon í kvö...
Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ís­land yrði hluti af Banda­ríkjunum - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ís­land yrði hluti af Banda­ríkjunum - Vísir
Rúv greindi frá málinu í kvöld en á þessum tíma hafði Trump ekki verið formlega settur inn í embættið að nýju þó hann hefði verið endurkjörinn forseti...
Viðraði hug­myndir um banda­rískt Ís­land við Bjarna - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 4
Viðraði hug­myndir um banda­rískt Ís­land við Bjarna - Vísir
Rúv greindi frá málinu í kvöld en á þessum tíma hafði Trump ekki verið formlega settur inn í embættið að nýju þó hann hefði verið endurkjörinn forseti...
Breska lögreglan rannsakar Umbótaflokk Farage
📅 10.09.2026 👁️ 3
Breska lögreglan rannsakar Umbótaflokk Farage
Umbótaflokkur Nigel Farage í Bretlandi er til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um brot á lögum um fjármögnun frá útlöndum. Rannsóknin byggir meðal ...
Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttar­höldum - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 2
Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttar­höldum - Vísir
Þess í stað vill Kevin Reddington, lögmaðurinn, að William Sullivan, dómarinn í málinu, úrskurði sjálfur að Clancy sé ósakhæf vegna geðrænna vandamála...
Hvað veistu um... göngu­leiðir? - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Hvað veistu um... göngu­leiðir? - Vísir
Bæði á Íslandi og erlendis má finna fjölmargar frægar, merktar gönguleiðir, margar sem eru vafalaust á „bucket-lista“ fólks. En hvað veistu um göngule...
„Mögulega hefur þetta eitthvað með það að gera að sakborningar eru bæði útlendingar og múslimar“
📅 10.09.2026 👁️ 2
„Mögulega hefur þetta eitthvað með það að gera að sakborningar eru bæði útlendingar og múslimar“
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson segir að hann minnist þess aldrei í tíð sinni sem verjandi að það sé gert að aðalatriði hvort sakborningar í sakamá...
Tvöfalt fleiri fá styrk til að kaupa heyrnartæki
📅 10.09.2026 👁️ 3
Tvöfalt fleiri fá styrk til að kaupa heyrnartæki
Árið 2014 fengu tæplega 1.100 manns slíkan styrk en í fyrra var fjöldinn kominn upp í um 2.300 manns, og það stefnir í að fjöldinn verði jafnvel enn m...
Starfsleyfislaus baðstofa í grásleppuskúr í óþökk borgarinnar
📅 10.09.2026 👁️ 3
Starfsleyfislaus baðstofa í grásleppuskúr í óþökk borgarinnar
Baðstofa sem starfrækt hefur verið í grásleppuskúr við Ægisíðu hefur ekki starfsleyfi. Reykjavíkurborg ætlar að höfða mál fyrir dómstólum verði skúrin...
„Við erum að gera stóra hluti í sam­göngum“ - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
„Við erum að gera stóra hluti í sam­göngum“ - Vísir
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir þetta sýna að núverandi ríkisstjórn setji samgöngur í forgang þótt hún dragi úr ríkisútgjöldum á öðrum sviðu...
Halla hæst­á­nægð með stólaskiptin - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Halla hæst­á­nægð með stólaskiptin - Vísir
Greint var frá því í dag að Halla yrði ekki lengur aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd og því orðin eini þingmaður flokksins sem ekki hefði aðalma...
Próf­laus á öfugum vegar­helmingi - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 3
Próf­laus á öfugum vegar­helmingi - Vísir
Þá var einn til viðbótar sektaður fyrir að nota farsíma við akstur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók löreglunnar en þar segir einnig að „að...
Trump hringdi í Bjarna Benediktsson og lagði til að Ísland yrði innlimað í Bandaríkin
📅 10.09.2026 👁️ 4
Trump hringdi í Bjarna Benediktsson og lagði til að Ísland yrði innlimað í Bandaríkin
Samkvæmt minnisblaði upp úr símtali Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, og Donald Trump, Bandaríkjaforseta, frá árinu 2024 lagði Trump ...
Rússland stofnar olíurisann á norðurslóðum: Hvað er Vostok Oil?
📅 10.09.2026 👁️ 2
Rússland stofnar olíurisann á norðurslóðum: Hvað er Vostok Oil?
Rússland stofnar olíurisann á norðurslóðum: Hvað er Vostok Oil? Fréttin10. september 2026Erlent, ViðskiptiLeave a Comment Fyrsti olíuflutningaskipið e...
Slökktu eld í íbúð í Hafnarfirði
📅 10.09.2026 👁️ 2
Slökktu eld í íbúð í Hafnarfirði
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti útkalli vegna elds í íbúð við Vallarbraut í Hafnarfirði. Mikinn svartan reyk lagði úr glugga íbúðarinnar þegar ...
Hútar herða tökin við Rauðahaf og olíuverð heldur áfram að hækka
📅 10.09.2026 👁️ 2
Hútar herða tökin við Rauðahaf og olíuverð heldur áfram að hækka
Hútar náðu völdum yfir hafnarborginni Mocha í Jemen í dag. Þeir segja öll skip geta siglt örugg um Rauðahaf, nema skip frá Sádi-Arabíu.Heimildarmenn R...
Watch: Is the Bayeux Tapestry exhibition worth the hype?
📅 10.09.2026 👁️ 2
Watch: Is the Bayeux Tapestry exhibition worth the hype?
Crowds have been flocking to the British Museum to see the Bayeux Tapestry as it's on public display in the UK for the first time since it was created...
Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna
📅 10.09.2026 👁️ 3
Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna
Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti brydd­aði upp á því í sím­tali við Bjarna Bene­dikts­so...
Þegar Trump hringdi í Bjarna
📅 10.09.2026 👁️ 5
Þegar Trump hringdi í Bjarna
Þegar Donald Trump birti í vikunni mynd af landakorti, þar sem Kanada, Grænland, hlutar Mið-Ameríku og svo Ísland voru sveipuð bandaríska fánanum, kal...
Eftir sigur tapaði Kristján Már fyrir Reykjavíkurborg
📅 10.09.2026 👁️ 4
Eftir sigur tapaði Kristján Már fyrir Reykjavíkurborg
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur úrskurðað Reykjavíkurborg í vil í langvarandi deilumáli borgarinnar við Kristján Má Unnarsson fréttama...
Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði
📅 10.09.2026 👁️ 3
Óvíst hvort Tækniskólinn rís í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbæ láðist að segja upp leigusamningi og því er nýbygging Tækniskólans við Hafnarfjarðarhöfn í uppnámi. Bærinn bauð aðra lóð á Völlunum se...