Sænski herinn vill taka landareign suður af Stokkhólmi eignarnámi til að auka öryggi Muskö-flotastöðvarinnar. Herinn segir að landsvæðið sé einstaklega vel til þess fallið að verja flotastöðina fyrir drónaárásum. Nú er það í eigu rússnesks ríkisborgara sem talinn er geta ógnað öryggi Svía.
Sú deild sænska hersins sem fer með uppbyggingu varnarinnviða fór þess í dag á leit við stjórnvöld að herinn fengi að taka landið eignarnámi. Það er við eina af siglingaleiðunum að flotastöðinni og er sagt eina landsvæðið nærri henni sem er ekki í eigu hersins.
Sænski herinn segir að í ljósi þeirrar ógnar sem stafar af drónahernaði Rússa sé nauðsynlegt að auka varnarviðbúnað við flotastöðina. Auka verði varnir gegn neðansjávardrónum jafnt sem flugdrónum.