Herforinginn Andriy Biletsky, sem stýrir þriðju stórdeild (corps) úkraínska hersins og heldur utan um varnir Úkraínumanna á stórum hluta víglínunnar í austurhluta landsins, lýsti því yfir í dag að í heildina hefðu Úkraínumenn tekið um 176 ferkílómetra aftur af Rússum í aðgerðinni sem ber nafnið „Vivaldi“.
Úkraínumenn halda enn um fimmtungi Dónetsk-héraðs. Það svæði inniheldur nokkrar borgir sem búið er að víggirða mjög. Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti.
Helstu borgirnar í virkisbeltinu eru Kostíantínívka, Kramatorsk og Slóvíansk.
Vivaldi-aðgerðin hefur í einföldu máli sagt beinst gegn tilraunum Rússa til að umkringja virkisbeltið úr norðri og þannig reyna að komast hjá mannskæðum átökum um borgirnar þar.
Biletsky segir í yfirlýsingu sem birt var í dag að Úkraínumönnum hafi svo gott sem tekist að gera út af við drónasveitir Rússa á svæðinu og þannig gert Rússum erfiðara fyrir að hafa yfirsýn yfir hvað væri að gerast.
Þá hafi Úkraínumenn gabbað stjórnendur Rússa á svæðinu, sem hafi sent liðsauka á rangan stað og raunveruleg sókn Úkraínumanna hafi komið þeim á óvart. Biletsky segir um tvö þúsund Rússa hafa verið fellda og rúmlega 250 hafa verið handsamaða í þessum þriðja lið Vivaldi.
Í heildina halda Úkraínumenn því fram að fimm þúsund rússneskir hermenn hafi fallið síðan Vivaldi hófst.
Meðfylgjandi myndband á að varpa ljósi á Vivaldi og hvernig aðgerðin fór fram en þar má sjá myndefni af víglínunni í sambland við gervigreindarmyndbönd.
Чим обернувся обманний маневр у третьому сезоні «Вівальді»?
— Третій армійський корпус (@ab3army) September 28, 2026
Трійка знищила точки зльоту дронів елітного російського підрозділу «Рубікон» — їх зняли з напрямку. Вперше роботизовані БТР-60 підірвали найскладніші укріплення ворога. Штурмовики прорвали його найміцніші вузли оборони.… pic.twitter.com/5mwIHtyPKs
Samhliða hægagangi rússneskra hermanna á víglínunni í Úkraínu hafa Rússar gert umfangsmeiri árásir á borgir og bæi Úkraínu á undanförnum mánuðum. Skortur á flugskeytum í loftvarnarkerfi og nýjungar Rússa með þotuknúna sjálfsprengidróna hafa gert Úkraínumönnum erfiðara að verjast árásum Rússa.
Úkraínumenn hafa einnig verið að auka árásir sínar í Rússlandi og þá sérstaklega gegn olíuframleiðsluinnviðum. Sala olíuafurða er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins.
Sjá einnig: Veturinn verði Rússum erfiður
Í dag gerðu Rússar árásir á Kænugarð. Meðal annars beindust þær að skrifstofuhúsnæði, vöruskemmu fyrir matvæli og gegn Vísindastofnun Úkraínu.
Rescue efforts continue in the center of Kyiv, after Russians targeted the Academy of Sciences.
— SPRAVDI — Stratcom Centre (@StratcomCentre) September 28, 2026
At least one woman is dead and several wounded as rescuers search for survivors. pic.twitter.com/pNQngpWWg9
Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við blaðamenn í Rússlandi í morgun að Úkraínumenn væru að gjalda fyrir árásir þeirra í Rússlandi að undanförnu.
„Auðvitað, forsetinn talaði einnig um þetta. Úkraína mun gjalda fyrir þær aðgerðir sem áttu sér stað á undanförnum mánuðum. Það er að gerast núna.“
Þá sagði Peskóv að hin sértæka hernaðaraðgerð, eins og Rússar kalla innrásina stundum, gengi áfram. Rússum væri nauðsynlegt að tryggja öryggi þeirra.