Vladimír Pútín Rússlandsforseti fetar í næstu viku í fótspor Donalds Trump Bandaríkjaforseta og heimsækir Xi Jinping Kínaforseta.
Samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum í Kreml heldur Pútín til fundar við Xi þriðjudaginn 19. maí til að styrkja vinaböndin og ræða mikilvægi hernaðarsamvinnu ríkjanna. Trump kvaddi Xi í gær og enn þykir heldur óljóst hverju fundir þeirra munu áorka þótt báðir segðust hæstánægðir.
Trump hefur þó varað Taívan við að lýsa yfir sjálfstæði og tilkynnt um viðskipti með landbúnaðarvörur og flugvélar. Pútín og Xi munu skiptast á skoðunum um lykilmálefni á alþjóðasviðinu og tengd Asíu að því er segir í tilkynningunni.
Rússlandsforseti mun einnig ræða efnahagsmál og viðskipti við forsætisráðherrann Li Qiang.
Kínverjar hafa lengi kallað eftir því að Rússar og Úkraínumenn semji um frið í innrásarstríðinu en hafa aldrei fordæmt Rússa fyrir að ráðast til atlögu að nágrönnum sínum og sagst hlutlausir.
Stjórnvöld þvertaka einnig fyrir að útvega Rússum vopn og íhluti í hertól og ásaka Vesturlönd um að draga stríðið á langinn með hernaðarstuðningi við Úkraínu. Ekkert ríki kaupir meira af rússneskri olíu og ríkin hafa styrkt viðskiptasamband sitt verulega á síðustu árum, ekki síst vegna efnahagsþvingana Vesturlanda gegn Rússlandi.