Rússlandsforseti réttlætti innrásarstríð sitt í Úkraínu og fordæmdi NATO í hátíðarræðu í tilefni sigurdagsins, þegar Sovétríkin unnu sigur á nasistum í seinni heimsstyrjöldinni. Forsetar Rússlands og Úkraínu hafa samþykkt þriggja daga vopnahlé og að skiptast á stríðsföngum.
Lágstemmdari hersýning en áður
Mikil hátíðarhöld eru alla jafna í Rússlandi á þessum degi en þau eru þó lágstemmdari í ár en áður. Ástæðan er ótti við drónaárásir Úkraínumanna sem hafa sótt fram að undanförnu.
Stór hersýning fór fram við Rauða torgið í Moskvu en engin hergögn eða skriðdrekar voru til sýnis í ár, í fyrsta skipti í tæpa tvo áratugi. Til samanburðar voru 11 þúsund hermenn í sýningunni í fyrra og 200 hernaðarleg farartæki til sýnis.
Þá mættu hátt í 30 erlendir þjóðarleiðtogar. Í ár voru aðeins þjóðarleiðtogar nokkurra bandalagsþjóða viðstaddir, meðal annars frá Belarús og Úsbekistan.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti flutti ræðu á hersýningunni. Hann sagði mikið afrek sigurvegarakynslóðarinnar hvetja þá hermenn sem berjast í Úkraínu í dag. „Þeir standa frammi fyrir árásargjörnu afli sem er vopnað og stutt af öllu NATO-bandalaginu.“
Þrátt fyrir þetta haldi hetjurnar áfram. Síðar í ræðunni sagðist hann trúa því staðfastlega að málstaður Rússa sé réttlátur.
Útilokar ekki að þriggja daga vopnahlé verði framlengt
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um þriggja daga vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í gær. Aðspurður hvort hann héldi að það gæti staðið lengur svaraði Trump að svo gæti orðið.
„Ég meina, það gæti verið. Það væri fínt. Ég myndi vilja sjá þetta hætta. Rússland - Úkraína: Þetta er það versta síðan í seinni heimsstyrjöldinni hvað varðar mannslíf. 25 þúsund ungir hermenn í hverjum mánuði. Þetta er brjálæði.“
Vopnahléið gildir frá deginum í dag fram á mánudag.