Rúmlega 400 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í morgun. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir aðsóknina mikla.
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir aðsóknina góða, mun fleiri hafi greitt atkvæði en búist var við á fyrsta degi. 266 hafa greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í dag, það eru rúmlegar fimm sinnum fleiri samanborið við fyrsta dag utankjörfundaratkvæðagreiðslu sveitarstjórnarkosninganna í vor en aðeins 52 höfðu greitt atkvæði utan kjörfundar á fyrsta degi í vor.
„Þannig að menn hafa áhuga á þessum kosningum og við erum með opið núna í fimm vikur fyrir kjördag. Venjulega er þetta fjórum vikum fyrir kjördag, þannig að það má segja að kosningin sé mun meiri.“
Móttökunar mögulega fyrirboði um það sem koma skal
Þjóðaratkvæðagreiðslan er haldin á heldur óhefðbundnum tíma. Sigríður telur mögulegt að Íslendingar búsettir erlendis, sem eru í sumarfríi hér, nýti tækifærið og kjósi.
Hjá öllum sýslumannsembættum og sendiráðum hafa samanlagt 408 skilað sínu atkvæði í kjörkassann. Sigríður segir að mögulega séu þessar móttökur fyrirboði um það sem koma skal.
„Við tókum á móti rúmlega 22.000 manns hérna í vor þegar það voru sveitarstjórnarkosningar. Síðan voru forsetakosningar 2024 og þá komu rúmlega 28. 000 manns til okkar og í alþingiskosningunum, sem voru líka 2024, þá komu rúmlega 26.000 manns.“
Sigríður segir að spennandi verði að fylgjast með framvindu mála, gaman veðri að sjá hvort utankjörfundaratkvæðagreiðslan verði álíka mikil og í forseta- og sveitarstjórnarkosningum.