Hann var svo gripinn glóðvolgur af rúmensku lögreglunni og stendur til að framselja hann til Íslands þar sem hann mun svara til saka.
Þá fjöllum við um Hantaveirusmitið um borð í farþegaskipinu Hondius en fólkið um borð er nú á leið til síns heima.
Að auki verður rætt við sveitastjórann í Grímsnes- og Grafningshreppi sem gagnrýnir þá staðreynd að fjöldi íbúa í hreppnum sem séu með ótilgreint heimilisfang hafi margfaldast fyrir komandi kosningar.
Í sportpakkanum heyrum við svo í nýkrýndum Bakgarðshlaupsmeistara sem kom í mark eldsnemma í morgun eftir að hafa hlaupið tæpa 250 kílómetra.