Búlgarska þingið samþykkti Rumen Radev sem nýjan forsætisráðherra Búlgaríu í gær. Radev var áður forseti Búlgaríu en sleit þingi í janúar og boðaði til kosninga sem fram fóru í apríl. Flokkabandalag hans, Progressive Bulgaria, tryggði sér 131 sæti af 240 þingsætum í kosningunum. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1997 sem flokkabandalag fær hreinan meirihluta í Búlgaríu.
Vonir standa til að Radev nái að koma á stöðugleika í stjórnmálum í landinu, en átta þingkosningar hafa verið haldnar í Búlgaríu á síðustu fimm árum. Hans bíða fjölmörg aðkallandi verkefni líkt og að klára fjármálaáætlun Búlgaríu fyrir þetta ár, takast á við hækkandi verðbólgu og endurbæta lamað dómskerfi. Þá þarf að gera ýmsar umbætur, sérstaklega aðgerðir gegn spillingu, svo Búlgarar geti losað um 400 milljóna evra styrki úr sjóðum Evrópusambandsins.
Gagnrýninn á ESB en neitar því að vera hallur undir Rússa
Um 6,5 milljónir manna búa í Búlgaríu og landið er fátækasta land Evrópusambandsins. Verðbólga mældist 7,1% í apríl og hafði þá hækkað um þrjú prósent frá mars, einkum vegna hækkandi eldsneytisverðs. Verðbólgan er sú hæsta á evrusvæðinu.
Radev hefur gagnrýnt Evrópusambandið og segir að hann vilji hefja samtal við Rússland á ný. Gagnrýnendur hans segja hann hallan undir Rússa, sem Radev hefur staðfastlega neitað. Radev hefur sagt að hann muni ekki beita neitunarvaldi í Evrópusambandinu varðandi aðstoð við Úkraínu en Búlgaría muni ekki taka þátt í fjármögnun á henni.
Radev var forseti Búlgaríu í tvö kjörtímabil, frá 2017 og fram í janúar á þessu ári. Hann er jafnframt fyrrum hershöfðingi og flugmaður í búlgarska flughernum.